Lögregla veitti ökumanni Hopp-deilibíls eftirför frá Lágmúla upp í Víðidal í Reykjavík stuttu eftir hádegi í dag. Ökumaðurinn ók utan í að minnsta kosti fjóra bíla meðan á eftirförinni stóð og þar af tvo lögreglubíla.
„Það barst ábending um að það væri ökumaður þarna í annarlegu ástandi að fara af stað á bíl. Lögregla var þarna nokkuð nærri og veitti bílnum eftirför,“ segir Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri á höfuðborgarsvæðinu.
Þó nokkrir lögreglubílar og mótorhjól komu að eftirförinni sem hófst um klukkan 12.30.
Ökumaðurinn nam staðar um klukkan 13 eftir að hann keyrði yfir umferðareyju við Víðidalinn.
Ekki liggur fyrir hve marga bíla hann skemmdi. Talið er að hann hafi ekið á um 140 kílómetra hraða á einhverjum tímapunkti á meðan lögregla veitti honum eftirför.
„Þetta hefur verið háskalegt aksturslag á þessari leið,“ segir Sævar.
Ökumaðurinn var undir áhrifum. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Fréttin hefur verið uppfærð.