Aukning hefur orðið í að konur snúi aftur í ofbeldissambönd eftir að hafa leitað sér aðstoðar. Þetta kemur fram í ársskýrslu Kvennaathvarfsins en þar segir að 21% kvenna hafi leitað aftur til ofbeldismanna á síðasta ári. Það hlutfall var 20% árið 2024 en 13% árið 2023.
Hlutfallið hefur þó lækkað mikið á undanförnum áratugum því árið 2001 sneru 64% aftur heim til ofbeldismanna. Lægst fór hlutfallið í 11% árið 2021.
„En það breytir því ekki að það verða alltaf einhverjar konur sem fara aftur til baka, þetta er ótrúlega flókið, að stíga út úr ofbeldi og út úr ofbeldissambandi, og það hefur sýnt sig að þetta eru svona sex til sjö skipti sem það getur að meðaltali tekið konu að taka þetta skref,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.
Margar konur að koma í fyrsta skipti
Hún telur að ein möguleg skýring á aukningunni sé að margar konur hafi komið í athvarfið í fyrsta skipti á síðasta ári.
„Þannig að það eru þá konur sem hafa aldrei komið áður í Kvennaathvarfið og eru sem sagt jafnvel í sinni fyrstu vegferð,“ segir hún. „Þannig að það eru þannig hlutir sem geta einnig spilað inn í þessar tölur en við erum vissulega að fylgjast vel með þessu.“
TIl stendur að nýtt húsnæði Kvennaathvarfsins verði opnað í ágúst og segir Linda að miklar vonir séu bundnar við það.
„Það verður áhugavert að sjá hvort að það breytist eitthvað tölurnar hjá okkur við þessa flutninga þar sem að konurnar fá þar svona ennþá meira næði og meira rými og við getum tekið betur á móti konum og börnum með fatlanir,“ segir hún.