Ökumaður á fjórhjóli slasaðist þegar hann missti stjórn á hjóli sínu með þeim afleiðingum að það lenti á tré. Slysið varð við Hafravatn um klukkan sex síðdegis í gær. Ekki fengust upplýsingar um hvort eða hversu alvarlega ökumaðurinn slasaðist.
Lögreglubíll og tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang.
Nokkur fjöldi fjórhjólamanna var þarna á ferð.