Ferðaþjónusta á hjara veraldar: Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga
Grænland vill að ferðaþjónusta standi undir fjörutíu prósentum af útflutningstekjum landsins árið 2035. Athygli alþjóðasamfélagsins hefur beinst að þessari stærstu eyju heims og sérfræðingar segja Bandaríkjaforseta hafa aukið áhuga á landinu líkt og eldgosið við „Eyjafjallajökul“ gerði hér. Heimildin rýndi í þróun ferðaþjónustunnar á Grænlandi sem hefur lært af ávinningum og mistökum nágrannaríkisins Íslands.
„Áhuginn frá Bandaríkjaforseta hefur náttúrlega komið okkur á kortið – í raun okkar Eyjafjallajökull,“ segir Inga Dóra Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og samskipta hjá Air Greenland. Heimsathyglin hefur beinst að Grænlandi undanfarið í kjölfar ummæla Donalds Trump Bandaríkjaforseta í janúar síðastliðnum um yfirtöku landsins. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem Trump ágirnist stærstu eyju heimsins en á sínu fyrra kjörtímabili lýsti hann því yfir að hann vildi að Bandaríkin keyptu Grænland.
Ferðaþjónusta á Grænlandi hefur verið í vexti undanfarin ár og stjórnvöld þar í landi stefna á að árið 2035 standi ferðaþjónustan fyrir fjörutíu prósentum af útflutningi landsins. Í dag eru prósentin fimm.
Heimildin ræddi við sérfræðinga um stöðu ferðaþjónustunnar á Grænlandi sem hefur getað dregið lærdóm af nágranna sínum, eldfjallaeyjunni Íslandi, landi sem eitt sinn reiddi sig nánast alfarið á sjávarútveginn en komst síðan á kortið.
Baráttan um ferðalög norðurslóða
Á heimasíðu Visit Greenland er að finna grein sem …