Feðgar í framboði vilja bylta borginni

Feðgar í framboði vilja bylta borginni

Feðgar í framboði vilja bylta borginni

Ari Edwald og Páll Edwald
Páll og AriLögfræðingurinn Páll Edwald og Ari Edwald fóru í framboð eftir tengsl við varaformann og formann Miðflokksins.
Mynd: Golli

Ari Edwald, lögmaður og rekstrarhagfræðingur, segir að það hafi ekki verið hugmynd sín að fara í framboð fyrir Miðflokkinn í sveitarstjórnarkosningunum sem fara fram 16. maí.

Aðdragandinn var kunningsskapur hans við formann flokksins, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, og framboð kærustu hans.

„Ég hef haft tengsl við flokkinn á síðustu misserum. Kærasta mín, Ingibjörg Davíðsdóttir, fór í framboð fyrir Miðflokkinn í Alþingiskosningunum haustið 2024 og það bar nú líka ansi bratt að. Það var blásið til kosninga í október og leitað til hennar um það leyti og hún tók að sér að vera í efsta sæti í Norðvesturkjördæmi og varð síðan þingmaður,“ segir hann.

„Ég hef þekkt Sigmund Davíð í mörg ár og það kom nú bara einhvern veginn þannig upp í lok síðasta árs að menn voru að setja saman lista og ég var með ábendingar um einhvern í efsta sæti. Ég stakk ekki upp á sjálfum mér og kom ekki sú hugmynd í hug. Þegar ég var spurður: „En hvað með sjálfan þig?“ þá sagðist ég ætla að hugsa málið ef til mín yrði leitað. Þegar það var svo gert í lok janúar með ákveðnari hætti þurfti ég ekki mikinn tíma til að hugsa mig um. Ég var einfaldlega til í þennan sprett og ég sé ekki eftir því. Mér finnst þetta hafa verið mjög skemmtilegt og það hefur gert mikið fyrir mig að taka þátt í þessu.“

„Tuðað“ í bílnum

Skoðanir á borgarmálunum höfðu blundað í Ara.

„Ég ólst upp í Reykjavík og hef búið í borginni í tæplega hálfa öld og alltaf starfað í Reykjavík. Mér finnst ýmislegt í okkar góðu borg hafa farið aflaga á síðustu fimmtán til tuttugu árum þannig að ég hef verið dálítið að tuða í bílnum á ferð minni um borgina í gegnum tíðina. Þetta er þess vegna einstakt tækifæri þegar maður brennur fyrir því að gera borgina betri þannig ég skorast ekki undan þessari áskorun.“

Sonur Ara, Páll Edwald, skipar sjötta sæti á sama lista og hann. Páll vinnur sem yfirlögfræðingur hjá Reir verk sem sérhæfir sig í mannvirkjagerð og fasteignaþróun. Tildrög þess að hann gefur kost á sér segir hann tengjast því að Snorri Másson, þingmaður flokksins, sé góður vinur sinn og að hann hafi mikið verið að hvetja Snorra til að fara í pólitíkina á sínum tíma og síðan hafi hann í gegnum tíðina verið að senda Snorra ýmsar upplýsingar í tengslum við byggingageirann svo sem hvað það kosti að byggja leikskóla.

„Ég hugsaði með mér að það væri kominn tími til að bjóða fram þjónustu mína og þekkingu og sjá hvort það væri spurn eftir henni. Ég nefndi það við Snorra einu sinni þegar við vorum að tala um borgarmál að ég gæti séð þetta fyrir mér. Ég var síðan ekkert að ganga á eftir honum þar sem ég hafði engan áhuga á að fara í pólitík ef það væri ekki eftirspurn eftir því. Síðan þegar hann leitaði til mín og kallið kom þá var ég klár og ég sé alls ekki eftir því. Ég fann strax í maganum eftir að ég gaf út tilkynninguna að þetta væri klárlega hárrétt ákvörðun hjá mér. Og síðan er bara bónus að geta gert þetta með gamla,“ segir Páll og hlær og á við föður sinn.

Fólkið vilji birtu og bílastæði

Eitt er að ákveða að fara fram og annað að koma fram með áherslumál. Ari er fyrri til að svara því hver áherslumálin eru.

„Ef ég legg áherslu á nokkur mikilvæg atriði þá snúa okkar helstu áherslumál að skipulagi. Við viljum ekki ganga of langt í því að þrengja að borgarbúum og samgönguæðum, alls ekki þétta byggð um of. Við höfum sagt að fólk vilji njóta þess að búa á Íslandi. Hér er nóg pláss og það á frekar að víkka út byggðina og njóta útsýnis til sjávar og fjalla. Hafa rýmra um sig,“ segir Ari. „Okkur finnst að þau stjórnvöld sem hafa stjórnað Reykjavík raunverulega í um þrjátíu ár þegar allt er talið séu löngu hætt að hlusta á borgarbúa heldur keyri áfram eigin hugmyndafræði sem er troðið upp á borgarbúa og breytinga krafist á þeirra lífsstíl sem fólk sé ekki sammála. Og þessar þvinganir snúa eins og ég sagði að skipulagi og gegn ofurþéttingu byggðar sem tengist umferðaræðum sem hefur verið þrengt að. Þvinganirnar lúta líka vissulega að bílastæðum. Kannanir sýna að það sé ekki heldur verið að byggja húsnæði sem fólk vill búa í - það búa æ færri í hverri íbúð og það er eftirspurn eftir minni íbúðum. En um leið vill fólk fá svalir og birtu í stað skuggahverfa og það vill bílastæði nálægt heimili sínu. Ekkert af þessu er verið að hlusta á.“

Hann segist óttast flótta úr borginni, en bendir þó á að fermetraverð fasteigna hafi hækkað mikið.

„Við leggjum líka áherslu skólamál og leikskólamál og málefni aldraðra en þetta tengist í rauninni. Ég hef til dæmis haft miklar áhyggjur af því að bæði fyrirtæki og vinnuveitendur vilja fara úr borginni. Fá fyrirtæki vilja til dæmis staðsetja sig vestan Hringbrautar í dag. Og það lítur líka þannig út að ef fólk eignast börn þá þurfi það að flytjast frá Reykjavík. Borgin stefnir í að verða fyrir eldra fólk og fólk sem reiðir sig á félagsleg úrræði. Það er vegna þess að borgin hefur haft gríðarleg áhrif á hækkun húsnæðisverðs með því að þrengja svona að. Verð á lóðum hefur verið sprengt upp en það er líka mikill kostnaður sem er lagður á fólk með þátttöku í því þegar byggingaraðilar verða að selja íbúðir með miklum afslætti inn í félagslega kerfið. Fólk er líka að kaupa og borga fyrir í íbúðarverði hluta af innviðauppbyggingu meðal annars leikskólanna og grunnskólanna þannig að það er kannski verðmiðinn sem borgin er búin að bæta á hverja íbúð. Lítil íbúð getur kostað 70 milljónir króna í stað 60 milljóna króna vegna þessa og munar um minna! Munur á fermetraverði í Reykjavík og í öðrum sveitarfélögum hérna í kring hefur einmitt aukist um meira en 100% síðan samningur um vaxtarmörk var gerður. Árið 2015 var munurinn í krónutölu 89.000 krónur á fermetra en er núna kominn í tæpar 190.000 krónur á fermetrann sem hann er dýrari í Reykjavík. Og þetta er mjög greinilegt þegar maður fer yfir það að allar götur frá því að þessi samningur um vaxtarmörk var gerður hér árið 2015 þá sýna mánaðarlegar verðbólgumælingar að það er húsnæðisliðurinn sem knýr verðbólguna áfram. Þetta eru gríðarlega mikilvæg áherslumál varðandi þróun mannlífsins í höfuðborginni.“

Algjörlega á móti borgarlínunni

Borgarlínan er hitamál og fólk er með misjafnar skoðanir á henni.

„Borgarlínan er auðvitað hluti af þessum þrengingum sem við erum að tala um og þess vegna erum við algjörlega á móti borgarlínunni. Það væri hægt að ná sambærilegum árangri í því að bæta almenningssamgöngur með miklu hagkvæmari hætti og án þess að raska svona mikið aðstæðum fyrir hinn miklu stærri hóp sem kýs að ferðast með bílum. Bílnotendur verða áfram um og yfir 90% af vegfarendum þó að borgarlínan myndi ná markmiðum sínum varðandi notkun,“ segir Ari. Hann fullyrðir að borgarlínan eigi að framkalla tafir, en stuðningsmenn hennar segja hana geta létt álagi af umferð bifreiða, sem Ari trúir þó ekki á.

„Það virðast ekki margir átta sig á því að það er einmitt markmið borgarlínunnar til næstu áratuga að umferðartafir aukist enn frekar fyrir þá sem velja að ferðast með bíl en að það dragi ekki úr þeim. Og okkur í Miðflokknum hefur þótt skrýtið að það skipti engu máli hvað borgarlínan kosti þegar koma fram trúverðugar tillögur um aukin gæði almenningssamgangna með meiri tíðni, betri vögnum og forgangi í umferðinni með hliðsettum forgangsakreinum, ljósastýringum og fleiru sem eigi að kosta kannski einn fjórða til einn þriðja af því sem áformað er með borgarlínu. Það er eins og fjárhagur reykvískra heimila skipti fráfarandi borgaryfirvöld engu máli og sé alls ekki tekinn með í reikninginn. Við höfum bent á að samkvæmt áætlunum þar sem gert er ráð fyrir að borgarlínan kosti 136 milljarða króna að það samsvari 16,3 milljónum króna á hvern einasta notanda í almenningssamgöngukerfinu í dag. Þannig að þetta eru gríðarlegar fjárhæðir sem er verið að færa minni hópi. En það er ekkert staldrað við og menn velta þessu ekki fyrir sér virðist vera.“

Borgin hækki verð íbúða

Megináherslur Páls eru áþekkar áherslumálum föður hans þó að blæbrigðamunur sé á. „Auðvitað lætur maður sig flest mál varða þegar í pólitíkina er komið. Ég hef mesta persónulega reynslu af skipulagsmálum. Það sem er sérstakt við þau er að tímalínan er svo löng frá því að deiluskipulag hefst og þar til húsið er tilbúið þannig að það er hægt að sjá í hvað stefnir nokkur ár fram í tímann. Eins og pabbi kom inn á áðan eru margir mismunandi þættir sem koma frá borginni sem ýta undir hækkun húsnæðisverðs. Til dæmis hafa gatnagerðargjöld og byggingarréttargjöld hækkað langt umfram byggingavísitölu á síðustu árum. Og það er ekki hægt að færa rök fyrir því af hverju. Þetta er bara aukaskattur sem fer þá beint í verðlagið.

„Eins og pabbi kom inn á áðan eru margir mismunandi þættir sem koma frá borginni sem ýta undir hækkun húsnæðisverðs.“
Páll Edwald

Það er lögbundið hlutverk sveitarfélaga að vera með lóðaframboð - samt eru borgaryfirvöld með heimatilbúinn lóðaskort sem ætti ekki að vera. Þau eru með kvaðir um hversu margar íbúðir af hverri stærð megi byggja. Nú er verið að tala um óseldar íbúðir. Oftast eru þetta um og yfir hundrað fermetra fjögurra til fimm herbergja íbúðir sem minni eftirspurn er eftir. Það hafa margir reynt að benda á það en borgin hlustar ekki.“

Ari bendir á að kröfur um meðalstærð íbúða séu enn að aukast og nefnir nýja hverfið á Ártúnshöfða. „Þar er búið að byggja um 500 íbúðir af um 6-8000 íbúðum sem eru fyrirhugaðar. Þar er í raun verið að hækka eða auka meðalstærð íbúðar því að meðalstærð í dag er kannski um 90 fermetrar en það er verið að þrýsta því í um 100 fermetra og verið að reikna með að það séu 2,8 íbúar í hverri íbúð. Staðan er hins vegar sú að meðalfjöldi íbúa er í raun tveir og þeim fer fækkandi. Eftirspurnin er frekar í kringum 60 fermetrar. Krafa er um að minni íbúðir megi ekki vera meira en 15% af íbúðunum í blokkinni en eftirspurnin eftir minni íbúðum er bara miklu meiri. Ég hef sagt að ef við í Miðflokknum réðum þessu myndum við strax veita byggingaraðilum þær upplýsingar að þeim væri frjálst ef þeir mögulega gætu að breyta teikningum sínum og koma betur til móts við það sem markaðurinn vill. Í ofanálag vilja borgaryfirvöld nánast gera íbúunum ókleift að komast leiðar sinnar á bílum,“ fullyrðir Ari.

Páll talar um að mun fleiri þættir spili inn í þetta. „Það er krafa um atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð. Nú standa um 47.000 fermetrar atvinnuhúsnæðis auðir í Reykjavík. Það borga alltaf einhverjir fyrir. Byggingarkostnaður breytist ekki. Hann er bara föst tala. Þannig að þetta og að selja Félagsbústöðum á undirverði, sem er kannski 2/3 af byggingarkostnaði, ýtir undir hækkun fasteignaverðs. Í samræmi við húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar hafa óhagnaðardrifin leigufélög tekið til sín um 36% af öllum nýbyggingum frá árinu 2015 og flestar minni íbúðirnar fara í þetta. Félagsbústaðir taka líka minni íbúðirnar. Þrátt fyrir að það sé verið að byggja nýjar íbúðir þá er verið að taka það sem kallað er eftir. Þær koma aldrei inn á almenna markaðinn.“

Enginn vilji ganga heim úr bílastæðahúsum

Páll bendir á að í samtölum við borgarbúa heyri hann að fólk vill ekki láta neyða sig í leiguhúsnæði. „Það er ekki verið að gefa út sérbýlislóðir. Það er eiginlega ómögulegt að fá lóð í Reykjavík fyrir raðhús og hvað þá einbýlishús þrátt fyrir að það sé gert í öðrum bæjarfélögum. Og þá þarf fólk að flytjast frá Reykjavík til að fá slíkar lóðir jafnvel þótt að það hafi kannski engan áhuga á því. Maður sér í hvað stefnir. Núna er verið að skipuleggja Keldnalandið og þar er reiknað með bílastæðishúsum og þyrftu íbúar að ganga 5-600 metra þaðan að íbúðarhúsunum. Það vill þetta enginn. Það er ekki ein manneskja að kalla eftir þessu. Þetta eru bara pólitískar kreddur frá úreltri hugmyndafræði. Þannig að það er eins og tengingin hafi rofnað milli borgarinnar og íbúanna. Það er ekki einu sinni verið að sinna grunnþjónustunni almennilega og allir eru sammála um að henni sé ábótavant. Við erum sammála sem íbúar Reykjavíkur að borga útsvar í hluti sem við erum sammála um að við ráðum ekki við að gera sjálf og erum tilbúin að leggja í púkk og það sé gert fyrir okkur. Það er hægt að lýsa ákveðnum þáttum í borginni eins og húsfélagi, en það er ekki verið að sinna því. Formaður húsfélagsins fer sínar eigin leiðir og hlustar ekki á neinn og er bara að halda partí í garðinum.“

Ari talar um ofuráherslu borgaryfirvalda á að auka hlut félagslegs húsnæðis og nefnir í því sambandi fyrirhugaðar um 4.000 íbúðir í Höllum í Úlfarsárdal. „Það er talað um að 35% af íbúðunum þurfi að vera félagslegt húsnæði. Þarna er verið að bregðast við vandamáli, sem er búið að búa til, með plástri. Þarna var áður gert ráð fyrir 1.200 íbúðum og það skipulag var í samræmi við þá byggð sem þegar var komin í Úlfarsárdal þar sem var búið að skipuleggja um 10.000 íbúðir á svæði sem nú er að stórum hluta utan vaxtarmarka frá 2015. Það væri miklu eðlilegra að halda sig bara við eldra skipulagið og skipuleggja 4.000 eða 10.000 íbúðir á stærra svæði og stefna að því að íbúðarverð lækki, að lóðum verði úthlutað og byggingaraðilar geti byggt ódýrara húsnæði þannig að fólk hafi efni á að koma sér upp þaki yfir höfuðið en þurfi ekki að flytjast í önnur sveitarfélög til þess að gera það. Kannanir sýna að 91% af fólki vill eignast eigið húsnæði en tölfræðin sýnir líka að á meðan um 80% af minni kynslóð eru í eigin húsnæði þá eru frekar litlar líkur á því að fólk sem er 18-20 ára í dag geti ráðið við það í fyrirsjáanlegri framtíð. Stefnubreytingin, sem við myndum vilja gera, væri að brjóta nýtt land undir íbúðir sem unnt væri að byggja með ódýrari hætti og sem fólk gæti haft efni á að eignast. Það á ekki að knýja upp húsnæðisverðið þannig að yfir 10 milljónir á hverja meðalíbúð séu orðnar einhver nýr kostnaður frá Reykjavíkurborg en svo eigi að bregðast við þeim tilbúna vanda með því að 35% af fólki sé í félagslegu húsnæði. Þarna erum við á rangri leið og þennan kúrs þarf að rétta,“ segir Ari.

Geldingnes og Spöngin

Feðgarnir telja báðir að göng væru betri kostur en brú þegar kæmi að fyrsta legg Sundabrautar sem lægi frá Sæbraut og yfir í Grarfarvog, en Vegagerðin hefur mælt með brú vegna þess hversu djúpt þyrfti að fara með göngin.

Áætlað er að Sundabraut liggi yfir Geldinganes sem er mikil náttúruparadís og vinsælt útivistarsvæði, meðal annars á meðal sjósundsfólks. Þá er fyrirhuguð byggð, en borgarstjórn samþykkti í fyrra að hún komi í kjölfar Sundabrautar. Ari segir að fyrir utan að opna þurfi fyrir byggingaframkvæmdir í Úlfarsárdal ætti að gera slíkt hið sama á Geldinganesi sem og víðar á þessu svæði og upp á Kjalarnes. Hann tekur fram að hugsa þurfi jafnframt um að hluti þess yrði áfram útivistarsvæði.

Grafarvogsbúar eru ekki allir sáttir við fyrirhugaða þéttingu byggðar í hverfinu sem Páll segir að sé gott dæmi um vel heppnað hverfi í núverandi ástandi en þar bjó fjölskyldan um árabil og þar ólst hann upp.

Gert er meðal annars ráð fyrir uppbyggingu í Spönginni þar sem helstu verslanir eru í Grafarvogi og byggja þar fjölbýlishús meðal annars þar sem nú eru bílastæði en bílastæði yrðu þá í bílakjallara. Ekki eru nærri allir Grafarvogsbúar sáttir við þá fyrirhuguðu þéttingu sem og það rask og ónæði sem fylgja myndi því jafnvel um árabil svo sem fyrir íbúa sem þar búa næst.

„Þetta er hluti af þeirri ofurþéttingu sem við erum algjörlega á móti,“ segir Ari. „Ég var nýlega uppi í Spöng og það var fullt af bílum á bílstæðunum. Þau voru í mjög mikilli notkun.“ Strætisvagnar aka þangað og bíða og talar Ari um að ef menn hugsi sér að fólk sem ekur utan af landi geti nýtt sér almenningasamgöngur í borginni þá verði það að geta lagt sínum bíl einhvers staðar. „Það er mjög lítið svigrúm í dag að leggja bíl við Spöngina,“ segir Ari en eins og fyrr segir er hugmyndin að byggja nokkur fjölbýlishús á svæðinu þar sem hluti bílastæðanna er.

Með þykkan skráp

Feðgarnir eru búnir að segja frá áherslumálum sínum en hvað hafa þeir sem persónur fram að færa? Hvað með styrkleika og sjálfstraust fyrir utan að það getur verið álag að vera borgarfulltrúi og opinber persóna.

„Ég tel mig vera með frekar þykkan skráp,“ segir Páll.

„Hann skortir ekki sjálfstraust,“ segir faðir hans, „en hann hefur líka sterkan menntunarlegan bakgrunn. Hann hefur lokið laganámi og er með MBA-gráðu auk þess að vera með próf í verðbréfamiðlun. Hann hefur alltaf verið seigur að bjarga sér. Hann fór að vinna í álverinu á Reyðarfirði sumarið 2017 og bjó þá á Egilsstöðum og tók sig til og stofnaði fyrst pöbb og svo pítsustað. Fáeinum árum síðar seldi hann sig út úr þeim reksri og keypti íbúð niðri á Kirkjusandi. Palli hefur alltaf verið framtakssamur og duglegur og líka duglegur í skólanum.“

„Ég trúi því að maður eigi að láta verkin tala,“ segir Páll. „Og ég hef reynt að sýna það núna á samfélagsmiðlum,“ segir hann og nær í símann sinn og sýnir upptöku á TikTok þar sem hann tók sig nýlega til að lagaði holu og þreif litlu tjörnina fyrir framan Ráðhúsið. „Hún var orðin eins og drullupollur. Sumt ruslið reyndist vera stöðumælasektir frá 2023 þannig að það var ekki búið að þrífa þetta í nokkur ár. Það sem truflar mig er að borgarfulltrúar ganga þarna fram hjá á hverjum degi til að fara í vinnuna, horfa á allt ruslið og það truflar þá ekki.“

Hvað með álag - skot og nettröll? „Þá væri maður allvega ekki í Miðflokknum,“ segir Páll og hlær og segist ekki vera hræddur við ljót orð. „Maður verður að ráða við þetta ef maður ætlar að vera í Miðflokknum. Það er vel sótt að honum af nettröllunum.“

Ari er ýmsu vanur.

„Ég hef verið í áberandi störfum frá því árið 1991 þegar ég varð aðstoðarmaður dóms- og kirkjumálaráðherra og það má segja að ferilinn hafi verið töluvert áberandi síðan. Kannski var mest áberandi starfið þegar ég var framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Kjaradeilur og fleira tók yfir fréttirnar jafnvel vikum saman þannig að maður er ýmsu vanur. Að vísu voru samfélagsmiðlar þá ekki komnir til sögunnar þannig að maður hefur þurft að venjast þeim en það haggar mér ekki mikið. Orðljótustu nettröllin eru ótrúlega lítill hópur og ég held að þeir sem setja mesta óhroðann fram séu nokkrir tugir. Ég held að meirihluti fólks horfi í gegnum þessa vitleysu alla og vilji frekar almennilega og heiðarlega umræðu.“

Ólst upp í blokk við Álfheima

Ari ólst upp í blokk við Álfheima, „í þriðju blokkinni frá Glæsibæ“. Faðir hans var lyfjafræðingur og veitti Lyfjaverslun ríkisins forstöðu, kallað lyfsölustjóri ríkisins á þeim tíma. Móðir hans var heimavinnandi þar til systkinin voru komin í gagnfræðaskóla. Hann segir að badminton hafi orðið sín íþrótt. Hann fór líka á skíði, hjólaði á sumrin, meðal annars upp að Elliðvatni til að veiða, og svo þegar hann varð eldri fór hann að spila golf.

Hann gekk í Vogaskóla og Langholtsskóla áður en hann hóf nám við Menntaskólann við Sund. Hann fór síðan í lögfræði og loks í rekstrarhagfræði í Bandaríkjunum.

„Ég var í stúdentapólitík á háskólaárunum, fyrir Umbótasinnaða stúdenta. Ég var varaformaður Stúdentaráðs og ritstjóri Stúdentablaðsins og ég var líka mikið í félagslífinu í lagadeild - var í ritnefnd Úlfljóts og mikið í kringum Orator.“ Ari segist ekki hafa tekið þátt í skipulögðu félagslífi á menntaskólaárunum þar sem badminton átti hug hans og hann æfði mikið á þeim árum. Þá vann hann talsvert með skóla, meðal annars að viðgerðum á badmintonspöðum og segir að sú vinna hafi einnig haldið sér gangandi fjárhagslega á háskólaárunum.

Ari á þrjú börn með fyrri eiginkonu sinni, Þórunni Pálsdóttur, og eina dóttur með seinni eiginkonu sinni, Gyðu Dan Johansen, og eru þau á aldrinum 13-34 ára.

Dýrkar Grafarvoginn

Eins og þegar hefur komið fram ólst Páll upp í Grafarvogi, nánar tiltekið í Foldahverfi. „Ég dýrka Grafarvoginn. Það var mjög skemmtilegt að vera þar,“ segir Páll sem segist alltaf hafa verið í fótbolta og svo lærði hann á píanó í níu ár í Tónlistarskóla Grafarvogs auk þess að byrja ungur í golfi.

„Hann fór að hafa meiri áhuga á að skemmta sér,“
Ari Edwald

„Mér sem foreldri fannst svolítið miður að þegar Palli fór í menntaskóla að hann fór að hafa meiri áhuga á að skemmta sér,“ segir Ari. „Um hríð vék það að vera með fókus á fótboltanum eða taka píanóið alvarlega eða golfið - og meira að segja námið sjálft. En svo þegar leið á menntaskólann kom Palli til baka sem mjög metnaðarfullur námsmaður og sá ásetningur fylgdi honum í háskólann. Þannig sé ég það.“

Ari Edwald og Páll Edwald

„Maður þarf náttúrlega að sinna félagslífinu líka,“ segir Páll. „Ég hef alltaf haft gaman af fólki og að vera með fólki. Það sem ég elskaði við menntaskólann var einmitt hvað það var mikið félagslíf. Að æfa fótbolta sautján ára fylgdu svo strangar reglur og það var eitthvað sem ég hafði ekki áhuga á þótt ég spili fótbolta enn í dag. Það er gert grín að því að ég sé í flestum bumbuboltum landsins og mér finnst það mjög skemmtilegt. En ég vissi að þetta væri ekki að fara að verða ferilinn minn. Ég var ekki að fara að verða atvinnumaður. Þá þurfti maður bara að velja og hafna. Maður hefur bara X mikinn tíma.“

„Ég hef aldrei séð það þannig að ég væri með pressu á Palla að hann myndi þurfa að sjá fyrir okkur í framtíðinni sem atvinnumaður í knattspyrnu þannig að það var engin þannig pressa frá mér,“ segir Ari. „En það má kannski segja samt að sem foreldri fannst mér félagslífið og eitthvað djamm skipa óþarflega mikinn sess á menntaskólaárunum. Það má kannski sjóða þessa athugasemd niður í það að ég hafi haft pínulitlar áhyggjur af því að Palli væri of líkur mér. Ég hefði sjálfur viljað læra á hljóðfæri sem ungur drengur en ég byrjaði á því fyrir nokkrum árum. Ég byrjaði að læra á gítar en ég fékk í jólagjöf frá systur hans Palla og tengdadóttur minni, konunni hennar, gítarnám fyrir nokkrum árum þannig að ég keypti gítar og fór að sækja tíma. Nú hefur það legið niðri um hríð en ég mun taka það upp aftur því það er mikil heilun og mjög gott að sitja og glamra.“

Páll segist vera mjög þakklátur fyrir að hafa verið í tónlistarnámi og golfi. „Maður var ekki kominn með næga innri ró fyrir golf þegar maður var svona ungur en ég byggi á því í dag. Þú varst duglegur að koma mér inn í veiði,“ segir hann og beinir orðum sínum til föður síns. „Sérstaklega þegar ég horfi til baka er það mjög mikilvægt og ég er mjög þaklátur fyrir það. Þegar maður fór að veiða án pabba þurfti maður að hnýta allt sjálfur og horfa á YouTube-myndband,“ segir Páll og hlær og á við að hann hafi ekki kunnað að hnýta.

Páll fór í lögfræði að stúdensprófi loknu en eldri systir hans er einnig lögfræðingur eins og faðir þeirra. Hann lauk meistararnámi í skiptinámi við Kaupmannahafnarháskóla.

Páll hefur í fjögur ár unnið hjá Reir verk og er þar yfirlögfræðingur. Hann býr ásamt unnustu sinni, Selmu Eir Hilmarsdóttur í miðbæ Reykjavíkur og þau eru nýlega trúlofuð.

Leggur áherslu á valddreifingu

Eins og fram hefur komið eru feðgarnir vel menntaðir og með reynslu úr atvinnulífinu en auðvitað er Ari með miklu meiri reynslu. Á hvað hefur hann lagt áherslu sem stjórnandi?

„Ég held að ég leggi áherslu á faglega stjórnunarhætti og valddreifingu. Það hefur alltaf verið þannig. Ég vann fyrst hjá hinu opinbera í átta ár sem aðstoðarmaður og nýtti ekki það sem ég hafði verið að læra beinlínis í stjórnun. Síðan fór ég í blaðamennsku í sex til átta mánuði þangað til ég var ráðinn fyrsti framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.“

Ari varð síðar forstjóri 365, forvera Sýnar, sem var langstærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins á þeim tíma. Hann segir það hafa verið flókið fyrirtæki en þar voru margar ólíkar rekstrareiningar. „Það var fyrsta alvöru stjórnunarstarfið mitt í einkageiranum. Að stýra 365 var mjög krefjandi en um leið einstaklega skemmtilegt og þar vann ég í tæp níu ár.“

Ari varð eftir það forstjóri Mjólkursamsölunnar í fimm ár en síðan einbeitti hann sér að útflutningi á Ísey-skyri. Í tíð Ara sem forstjóra MS árið 2016 var félagið sektað af Samkeppniseftirlitinu um 480 milljónir króna fyrir að „misnota markaðsráðandi stöðu“, en Ari fór í hart og sagði á þeim tíma að framganga eftirlitsins væri „lítilmannleg“. Sektin var síðan lækkuð af áfrýjunarnefnd í 40 milljónir króna. Málið fór í gegnum dómskerfið, en á endanum tapaði MS málinu fyrir Hæstarétti og var skyldað til að greiða 440 milljónir króna í sekt.

Ari segist einbeita sér að rammanum.

„Nálgun mín hefur alltaf verið sú að skapa teymi og búa til umgjörð. Hjá 365 var verið að búa til sjónvarpsþætti, það var verið að búa til fleiri en eitt blað, útvarp og fleira. Maður var að teikna upp skipulagið sem studdi við fólk til að það næði árangri. Það þurfti skipulag, ferla og boðleiðir. Það þurfti fjármagn og menn þurftu að vita hvar þeir stóðu. Og ég leyfi mér að líta svo á að þessi nálgun hafi lagt grunn að mjög góðum árangri þessa fyrirtækis.“

Þessa reynslu alla og þekkingu telur Ari að hann geti nýtt í borgarmálunum og segist hann vona að meðal kjósenda sé frjór akur fyrir reynslu og þekkingu á þessu sviði.

„Varðandi það að bæta þjónustu eða árangur þá get ég nefnt áherslur okkar varðandi til dæmis grunnskólann. Talað er um að búið sé að ganga of langt varðandi það sem er kallað „skóli án aðgreiningar“ en við hjá Miðflokknum segjum að það þurfi að sníða námið betur að hverjum og einum nemanda. Þeir hafa misjafnar þarfir en það er verið að leggja mikið á skólann að vera nokkurs konar félagsmálastofnun. Það er ekki þannig að allt það sama henti öllum. Þarna tel ég að sú nálgun henti vel að valdefla skólann; draga úr miðlægri stýringu en leggja línur og að þeir sem eru næstir vettvangi hafi meira svigrúm til þess að vinna úr áskorunum og komast að niðurstöðu. Og sama gildir um önnur svið. Ég hef ekki sérfræðiþekkingu á hverju og einu sem unnið er í hjá borginni en maður kemur kannski að með þá þekkingu og reynslu að það þurfi að vera rammi, það þurfi að vera rekstrarlegur agi og fólk þurfi að vita hvar það stendur og hvaða heimildir það hefur til að taka ákvarðanir og vinna úr málum. Og valddreifing er best. Það er best að færa ákvarðanir sem næst viðfangsefnunum og draga úr millilögum í stjórnsýslu og hindra að allt þurfi að dragast í einhverja flöskuhálsa.“

Átta ára í umræðum um hlutabréf

Páll segir að frá því hann man eftir sér hafi hann verið heltekinn af fasteignum. „Þú manst kannski hvað ég var gamall þegar ég beið á mánudögum eftir fasteignablaðinu?“ segir hann og beinir orðum sínum að föður sínum.

„Ég man það ekki,“ segir Ari, „en ég man að árið 2005, þegar þú hefur verið átta ára, vorum við í sumarbústað með fleira fólki. Þar voru meðal annars kaupsýslumenn sem voru miklu meira á kafi í þeim hlutum heldur en ég sem var þarna framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og var í þjóðhagslegum pælingum gagnvart atvinnulífinu. Þarna varst þú á bólakafi í samtali við fullorðna menn um hlutabréf.“

Páll hlær.

„Ég man eftir þessu,“ segir hann. „Þetta var í Skorradal. Ég var gagntekinn af hlutabréfum fram að hruni,“ segir Páll, „en þá fór ég að pæla í einhverju öðru. Þá voru það fasteignir sem tóku við.“ Hann telur að hluta af þeim áhuga tengist því að móðurafi hans var einn af stofnendum Ístaks og var forstjóri þar í rúm þrjátíu ár.

Páll Edwald

En hvað með reynslu hans og hvernig myndi hún geta nýst í borgarmálunum?

„Ég held að það sé tímabært að einhver í borgarstjórn viti hvað kostar að byggja, hver raunverulegur byggingarkostnaður er.“

„Það er metnaðarfullt markmið hjá okkur að ná Palla inn,“ segir faðir hans, „því að hann er í 6. sæti en skoðanakannanir hafa verið að spá okkur þremur fulltrúum. Okkur finnst við hafa meðbyr þannig að við erum bjartsýn að það sé ekki lokasvar og það geti enn bæst við. En það þarf að taka vel á því.“

„Ég missi allavega ekki trúna, sjáum hvað kemur upp úr kjörkössunum,“ segir Páll.

„Ég hef fulla trú á því að það sé innan þess mögulega,“ segir Ari.

Ekkert sjálfgefið

Lífið er ekki alltaf dans á rósum en misjafnt er hve öldurnar eru háar í lífsins ólgusjó. Páll er ungur og honum hefur vegnað vel en er einhver lífsreynsla sem hefur haft áhrif á hann og jafnvel breytt lífssýn hans?

„Þegar ég horfi til baka og ber mig saman við marga í kringum mig þá stendur upp úr hvað ég hef fengið að vera sjálfstæður frá því ég man eftir mér. Það er sama hvað ég var gamall - ég fékk alltaf svo mikið traust frá foreldrum mínum svo sem varðandi hvenær ég myndi skila mér heim. Ég var ekki njörvaður niður í fastan ramma. Hvort sem ég var tíu ára eða tvítugur hef ég alltaf verið mjög sjálfstæður, tel ég.“

Hvað með lífsreynslu eða erfiðleika? Hann segir að það tengist því þegar hann hefur misst nákomna og vin sem svipti sig lífi. Hann nefnir líka ungt fólk í kringum sig sem hann þekkti ekki vel en fór of snemma.

Þetta hefur haft áhrif á Pál sem segist vera meðvitaður um hvað lífið er stutt og að ekkert er sjálfsagt. „Það á að nýta tímann sem maður hefur og gera allt strax sem maður getur og ekki velta sér upp úr því hvað öðrum finnst. Það hafa allir milljón skoðanir.“

Það er víða álag á ungu fólki og segir Páll að það sé alltaf hægt að gera betur. „Píeta samtökin hafa unnið mjög gott starf og Bergið.“ Hann nefnir hvað skólinn og íþróttastarf sé gagnlegt sem forvörn og að „gera það sem við getum“. „Ég hef tekið fyrir opnunartíma í sundi um helgar,“ segir hann en sundlaugum er nú lokað fyrr á kvöldin og um helgar. „Þótt þetta sé ein besta forvörnin þá er sund líka gott fyrir þá sem eru einmana. Þeir fara í sund, hitta fólk og geta tuðað í pottinum.“

Ekki eins í pottinn búið

Ari segist vilja meina að heilt yfir hafi hann fyrst og fremst notið mikillar velgengni í lífinu, fengið mörg tækifæri og átt gott fjölskyldulíf þrátt fyrir tvo hjónaskilnaði. „Það voru ekki átök í kringum þá. Fyrri skilnaðurinn var eftir 29 ára samband,“ segir hann en þau Þórunn voru 16 og 17 ára þegar þau kynntust. „Hlutirnir einfaldlega breytast. Í dag er mjög gott samkomulag og samstarf við báða fyrri maka mína og allt fólk. Góður vinur minn orðaði það nýlega þannig að hann væri svo ánægður með að það væri allt gott í kringum Ara. Ég hef alltaf lagt áherslu á að hlutirnir séu á eins lygnum sjó og hægt er. En það getur enginn reiknað með því og ætlast til þess að lífið sé alltaf bara dans á rósum og það hefur ekkert verið hjá mér heldur. Ég hef meðal annars upplifað það að hafa verið borinn röngum sökum sem varð um hríð að töluvert mikilli aurskriðu lyga,“ segir Ari og á þarna við sakir sem hann og nokkrir vinir hans voru bornir fyrir rúmum fjórum árum vegna meintra atvika ári áður. Þeir kærðu síðar viðkomandi fyrir tilraun til fjárkúgunar og hótanir sem var svarað með kæru um kynferðisbrot. Rannsókn þeirra mála var hætt fyrir tæpum þremur árum.

„Lífið varð erfitt í kjölfar ásakananna.“
Ari Edwald

„Þetta var áfall og lífið varð erfitt í kjölfar ásakananna. En ég átta mig líka á því að svona högg eru engan veginn sambærileg við að ástvinur greinist með lífshættulegan sjúkdóm.

Til að styrkja mig hef ég bæði leitað ráðgjafar og hlustað á ýmsa fyrirlestra. Svo kemur kannski eitt samtal sem hefur meiri áhrif en annað og maður áttar sig kannski á því seinna að eitthvað kveikti innra með manni betri hugsunarferil og hafði þegar upp var staðið mikið gagn. Þannig að það er mjög mikilvægt að reyna að stjórna sínu hugsunum og hafa trú á því að það komi dagur eftir þennan dag og helga sig spennandi verkefnum.

Það er almennt ekkert eitt sem mótar mann. Maður lærir smátt og smátt. Það verða allir fyrir áföllum og það eiga allir tapleiki og maður þarf bara að rífa sig upp og horfa til framtíðar. Hrista af sér erfiðleika. Ef það er eitthvað eitt sem maður hefur lært þá er það mikilvægi rósemi hugans. Því það mun áfram ganga stundum betur og stundum verr. Reynslan kennir manni að halda haus í gegnum hvort tveggja og heldur ekki að missa sig þó vel gangi um hríð.

Mótlæti í lífinu hefur breytt mér að því leytinu að ég er þroskaðri. Ég er varari um mig og ég geng aðeins hægar um allar dyr, gleðinnar dyr jafnt sem aðrar. Ég er reynslunni ríkari að því leyti. En ég má samt ekki hætta að vera ég sjálfur. Við höfum verið að tala um þetta framboð. Ég hefði ekkert verið að bjóða mig fram árið 2022 og 2023. En ég er tilbúinn í dag þannig að ég tel mig vera búinn að læra og styrkjast.“

Lifir með kæfisvefn

Ari Edwald

Það vakti athygli þegar Ari mætti í viðtal hjá Berlindi Festival í Vikunni með Gísla Marteini og sagði frá kæfisvefni. Hann talar um að þau Berglind hafi opnað á umræðuna. Kæfisvefn og svefnvélar mega ekki vera feimnismál frekar en smokkurinn á sínum tíma.

„Kæfisvefn er mjög alvarlegur og getur banað fólki. Þetta er svo mikið álag á líkamann að vera alveg við það að kafna. Ég var svo heppinn að vera kallaður inn í mælingu á tímabili þegar ég hef örugglega verið í mínu versta formi en læknirinn, sem hélt utan um þetta, sagði að ég væri með svo mikinn kæfisvefn að ég hefði örugglega líka þjáðst af þessum vanda sem barn. Svo hefur kannski dregið úr því þegar ég var unglingur en þá var maður eins og tannstöngull,“ segir Ari en offita er ein algengasta orsök kæfisvefns.

„Ástæðan fyrir því að þetta uppgötvaðist hjá mér er að ég hef verið svo áhugasamur að taka þátt í öllum rannsóknum. Ef ég fæ bréf um að það sé verið að gera einhverjar rannsókn þá er ég mættur og er í þrjá tíma að láta mæla augnbotninn, lengd, þefskyn og hvaðeina.“

Ari var sendur heim með mælitæki og komu í ljós um 40 öndunarstopp á klukkutíma þegar hann var sofandi og súrefnismettunin í blóðinu var einungis um 77%. Ari sefur þess vegna með þar til gerða vél. „Það eru margir með svona vél en það eru fleiri sem þyrftu að vera með svona búnað. Þessi vandi er talinn vera mjög vangreindur,“ segir Ari og talar um að það verði að ræða um þessi mál. „Fólk verður að vita af þessu og þekkja einkennin.“

Hann segir að kæfisvefn hafi meðal annars áhrif á nýrnastarfsemina og það hafi verið fleiri klósettferðir á nóttinni og hann hafi oft vaknað sveittur. „Það er allt annað líf eftir að ég fékk vélina.

Maður er ekkert flottur með grímuna en kærastan mín vill að ég sé með þetta af því að hún vill ekki að ég taki áhættu með heilsuna. Dagurinn er líka allt öðruvísi ef ég sef samfellt og fæ hvíld. Áður sofnaði ég stundum á daginn svo sem á fyrirlestrum. Ég sagði fólki þá að ég væri með lokuð augu til að hlusta betur. Eðlilega voru þó grunsemdir uppi um að ég væri ekki að fylgjast með og einbeita mér en nú er þetta í lagi.“

Ari stefnir því glaðbeittur og glaðvakandi á borgarstjórn fyrir Miðflokkinn, sem mældist með 10% fylgi í síðustu könnun Maskínu, svipað og Viðreisn og Vor til Vinstri.

#framboði #borginni #feðgar #vilja #bylta


Upprunaleg slóð:
https://mannlif.is/greinar/fedgar-i-frambodi-vilja-bylta-borginni/

📰 Aðrar fréttir

Kanóna í Sjálfstæðisflokknum rýfur þögnina – „Á mjög erfitt með þá orðræðu og heift sem nú ræður ríkjum“ - DV
📅 25.04.2026 14:30:00 👁️ 0

Kanóna í Sjálfstæðisflokknum rýfur þögnina – „Á mjög erfitt með þá orðræðu og heift sem nú ræður ríkjum“ - DV

#sjálfstæðisflokknum#þögnina#orðræðu#kanóna#erfitt
ESB sagt ætla að lokka Ísland inn með undanþágum í sjávarútvegi
📅 25.04.2026 14:22:13 👁️ 1

ESB sagt ætla að lokka Ísland inn með undanþágum í sjávarútvegi

#sjávarútvegi#undanþágum#ísland#lokka#sagt
Sam­fylking og Miðflokkur á flugi í Kópa­vogi - Vísir
📅 25.04.2026 14:20:51 👁️ 1

Sam­fylking og Miðflokkur á flugi í Kópa­vogi - Vísir

#samfylking#miðflokkur#kópavogi#flugi#vísir
Djammvænn glaðningur leyndist í afmælisköku Vikunnar
📅 25.04.2026 14:20:17 👁️ 0

Djammvænn glaðningur leyndist í afmælisköku Vikunnar

#afmælisköku#glaðningur#djammvænn#leyndist#vikunnar
Kjörsókn dræm í fyrstu kosningunum síðan stríðið á Gaza hófst
📅 25.04.2026 14:19:00 👁️ 1

Kjörsókn dræm í fyrstu kosningunum síðan stríðið á Gaza hófst

#kosningunum#kjörsókn#stríðið#fyrstu#síðan
The number of Holiday Lets has fallen in Canary Islands but demand has increased
📅 25.04.2026 14:13:00 👁️ 0

The number of Holiday Lets has fallen in Canary Islands but demand has increased

#increased#holiday#islands#number#fallen
Ofsagróði leigusala
📅 25.04.2026 14:00:00 👁️ 1

Ofsagróði leigusala

#ofsagróði#leigusala
Princess Catherine pays tribute to war dead of Australia and New Zealand
📅 25.04.2026 13:52:39 👁️ 1

Princess Catherine pays tribute to war dead of Australia and New Zealand

#catherine#australia#princess#tribute#zealand
Traust á heimsveldið er að dvína – Bandaríkin flytja út gull sem aldrei fyrr
📅 25.04.2026 13:47:47 👁️ 1

Traust á heimsveldið er að dvína – Bandaríkin flytja út gull sem aldrei fyrr

#heimsveldið#bandaríkin#traust#flytja#aldrei
Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ - Vísir
📅 25.04.2026 13:35:33 👁️ 1

Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ - Vísir

#kannanir#vísir#inni#bara
Spilltustu blaðamenn Íslands einangrast
📅 25.04.2026 13:31:09 👁️ 1

Spilltustu blaðamenn Íslands einangrast

#spilltustu#einangrast#blaðamenn#íslands
Sviðsetja rútuslys á Bakkaflugvelli
📅 25.04.2026 13:25:51 👁️ 1

Sviðsetja rútuslys á Bakkaflugvelli

#bakkaflugvelli#sviðsetja#rútuslys
Five arrested with 21.5 kilos of cocaine in a car in Lanzarote
📅 25.04.2026 13:09:00 👁️ 1

Five arrested with 21.5 kilos of cocaine in a car in Lanzarote

#lanzarote#arrested#cocaine#kilos#five
Netanyahu greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli
📅 25.04.2026 13:02:02 👁️ 1

Netanyahu greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli

#blöðruhálskirtli#krabbamein#netanyahu#greindist
OnlyFans fyrirsætur í herferð gegn loftslagsvá
📅 25.04.2026 13:00:31 👁️ 2

OnlyFans fyrirsætur í herferð gegn loftslagsvá

#loftslagsvá#fyrirsætur#onlyfans#herferð#gegn
Óljóst hvort Bandaríkjamenn og Íranar fundi í dag
📅 25.04.2026 12:46:58 👁️ 1

Óljóst hvort Bandaríkjamenn og Íranar fundi í dag

#bandaríkjamenn#óljóst#íranar#hvort#fundi
The benefits of using Thermal Labels for Shipping and Storage
📅 25.04.2026 12:43:00 👁️ 1

The benefits of using Thermal Labels for Shipping and Storage

#benefits#shipping#thermal#storage#labels
Ritstjóri Fréttarinnar nær sáttum við Icelandair
📅 25.04.2026 12:35:42 👁️ 1

Ritstjóri Fréttarinnar nær sáttum við Icelandair

#fréttarinnar#icelandair#ritstjóri#sáttum
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Kópavogi
📅 25.04.2026 12:18:54 👁️ 1

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Kópavogi

#sjálfstæðisflokkurinn#stærstur#kópavogi
Lögbrot að selja hunang með stinningarlyfjum að mati forstjóra Lyfjastofnunar
📅 25.04.2026 12:16:08 👁️ 2

Lögbrot að selja hunang með stinningarlyfjum að mati forstjóra Lyfjastofnunar

#stinningarlyfjum#lyfjastofnunar#forstjóra#lögbrot#hunang
Starmer 'shambles' hangs over Scotland and Wales elections - Laura Kuenssberg
📅 25.04.2026 12:07:54 👁️ 1

Starmer 'shambles' hangs over Scotland and Wales elections - Laura Kuenssberg

#kuenssberg#elections#shambles#scotland#starmer
Ný könnun í Kópavogi: Miklar sviptingar og margir möguleikar í stöðunni - DV
📅 25.04.2026 12:00:42 👁️ 1

Ný könnun í Kópavogi: Miklar sviptingar og margir möguleikar í stöðunni - DV

#sviptingar#möguleikar#kópavogi#stöðunni#könnun
Pressa í borginni: Oddvitasamtöl í Tjarnarbíó
📅 25.04.2026 12:00:00 👁️ 2

Pressa í borginni: Oddvitasamtöl í Tjarnarbíó

#oddvitasamtöl#tjarnarbíó#borginni#pressa
Metfjöldi í Hlíðar­fjalli á stór­af­mæli Andrésar - Vísir
📅 25.04.2026 11:47:35 👁️ 1

Metfjöldi í Hlíðar­fjalli á stór­af­mæli Andrésar - Vísir

#hlíðarfjalli#stórafmæli#metfjöldi#andrésar#vísir
Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimm­tíu ár - Vísir
📅 25.04.2026 11:47:35 👁️ 1

Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimm­tíu ár - Vísir

#síðustu#fimmtíu#slíkur#fjöldi#vísir
Gerðu á­rás á mörgum stöðum á sama tíma - Vísir
📅 25.04.2026 11:36:31 👁️ 3

Gerðu á­rás á mörgum stöðum á sama tíma - Vísir

#mörgum#stöðum#gerðu#vísir#árás
Fjórðungi færri fá fjárhagsaðstoð en áður
📅 25.04.2026 11:29:06 👁️ 2

Fjórðungi færri fá fjárhagsaðstoð en áður

#fjárhagsaðstoð#fjórðungi#færri#áður
Armed groups launch coordinated attacks across Mali
📅 25.04.2026 11:21:03 👁️ 3

Armed groups launch coordinated attacks across Mali

#coordinated#attacks#groups#launch#across
ESB-sókn til Íslands hluti af stærri pólitík
📅 25.04.2026 11:20:25 👁️ 1

ESB-sókn til Íslands hluti af stærri pólitík

#íslands#pólitík#stærri#hluti#sókn
Vill skilgreina siglingaleiðina til Vestmannaeyja sem „þjóðferjuleið“
📅 25.04.2026 11:18:16 👁️ 2

Vill skilgreina siglingaleiðina til Vestmannaeyja sem „þjóðferjuleið“

#siglingaleiðina#vestmannaeyja#þjóðferjuleið#skilgreina#vill
Vilja vernda viðkvæmar strendur fyrir ágangi ferðamanna
📅 25.04.2026 10:41:55 👁️ 2

Vilja vernda viðkvæmar strendur fyrir ágangi ferðamanna

#ferðamanna#viðkvæmar#strendur#vernda#ágangi
Mali army says armed groups launch coordinated attacks across country
📅 25.04.2026 10:33:26 👁️ 2

Mali army says armed groups launch coordinated attacks across country

#coordinated#attacks#country#groups#launch
Erkibiskupinn leyfir kjöt á grillið á föstudaginn
📅 25.04.2026 10:04:07 👁️ 2

Erkibiskupinn leyfir kjöt á grillið á föstudaginn

#erkibiskupinn#föstudaginn#grillið#leyfir#kjöt
Engin viðmið eða skilyrði um skólahald í Grindavík
📅 25.04.2026 09:55:31 👁️ 2

Engin viðmið eða skilyrði um skólahald í Grindavík

#skólahald#grindavík#skilyrði#viðmið#engin
Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár - Vísir
📅 25.04.2026 09:51:26 👁️ 2

Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár - Vísir

#gasabúar#tuttugu#fyrsta#kjósa#vísir
RÚV neitar að leiðrétta frétt um meinta hótun í garð Helga Seljan
📅 25.04.2026 09:47:09 👁️ 2

RÚV neitar að leiðrétta frétt um meinta hótun í garð Helga Seljan

#leiðrétta#neitar#meinta#seljan#frétt
I'm A Celebrity final: Row breaks out as 'jungle legend' crowned
📅 25.04.2026 09:33:37 👁️ 2

I'm A Celebrity final: Row breaks out as 'jungle legend' crowned

#celebrity#crowned#breaks#jungle#legend
Íslenskur brúðusöngleikur frumsýndur í Samkomuhúsinu
📅 25.04.2026 09:20:24 👁️ 1

Íslenskur brúðusöngleikur frumsýndur í Samkomuhúsinu

#brúðusöngleikur#samkomuhúsinu#frumsýndur#íslenskur
Fjórði maðurinn í gæsluvarðhald og húsleit gerð hjá tveimur
📅 25.04.2026 09:19:38 👁️ 2

Fjórði maðurinn í gæsluvarðhald og húsleit gerð hjá tveimur

#gæsluvarðhald#maðurinn#húsleit#tveimur#fjórði
Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarn­veigar dvína - Vísir
📅 25.04.2026 09:04:06 👁️ 2

Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarn­veigar dvína - Vísir

#kosningaspá#bjarnveigar#alberts#aukast#vísis
Tengdasonur RÚV á Berlinske
📅 25.04.2026 09:02:48 👁️ 1

Tengdasonur RÚV á Berlinske

#tengdasonur#berlinske
Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst - „Þetta hlaut alltaf að komast upp“ - DV
📅 25.04.2026 09:00:32 👁️ 2

Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst - „Þetta hlaut alltaf að komast upp“ - DV

#ólafssyni#svindlið#þriggja#áratuga#ráðgáta
Two young children die in Wolverhampton house fire
📅 25.04.2026 08:56:46 👁️ 2

Two young children die in Wolverhampton house fire

#wolverhampton#children#young#house#fire
Fá ekki að kalla þrjá dómara til að bera vitni
📅 25.04.2026 08:23:06 👁️ 4

Fá ekki að kalla þrjá dómara til að bera vitni

#dómara#kalla#vitni#ekki#þrjá
Segja engan fund á dag­skrá - Vísir
📅 25.04.2026 08:21:21 👁️ 2

Segja engan fund á dag­skrá - Vísir

#dagskrá#segja#engan#vísir#fund
Með miklu stærra bílastæði en þú
📅 25.04.2026 08:00:12 👁️ 3

Með miklu stærra bílastæði en þú

#bílastæði#stærra#miklu
Blotnar aðeins suðvestan til en bjartara norðaustan til
📅 25.04.2026 07:48:45 👁️ 3

Blotnar aðeins suðvestan til en bjartara norðaustan til

#norðaustan#suðvestan#bjartara#blotnar#aðeins
Harðneskjulegar aðstæður á víglínunni
📅 25.04.2026 07:44:34 👁️ 2

Harðneskjulegar aðstæður á víglínunni

#harðneskjulegar#víglínunni#aðstæður
Hand­tekinn eftir að hafa valdið um­ferðar­slysi - Vísir
📅 25.04.2026 07:44:03 👁️ 2

Hand­tekinn eftir að hafa valdið um­ferðar­slysi - Vísir

#umferðarslysi#handtekinn#valdið#eftir#vísir
Key rally stage cancelled in Gran Canaria due to numerous illegally parked cars
📅 25.04.2026 07:35:00 👁️ 3

Key rally stage cancelled in Gran Canaria due to numerous illegally parked cars

#cancelled#illegally#numerous#canaria#parked