Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglu. Héraðsdómur taki ákvörðun í málinu í dag.
Níu voru handteknir fyrir tveimur vikum eftir að 106 kílógrömm af kókaíni fundust í sjókistu undir álflutningaskipi í Straumsvík.
Um er að ræða mesta magn kókaíns sem fundist hefur í einni og sömu sendingunni í Íslandssögunni, en andvirði efnanna er talið hlaupa á þremur milljörðum króna á svörtum markaði.
Af þeim níu sem voru handteknir eru þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar. Greint hefur verið frá því að Lárus Freyr Einarsson, sem var sakfelldur fyrir manndráp í Danmörku árið 2011, og Lúther Ólason, sem hlaut dóm fyrir skattsvik í hitteðfyrra.
Enginn hinna grunuðu er skipverji Koznitza, en skipið hefur haldið á önnur mið og er nú við höfn í Rússlandi.