Tilkynningum um kynferðisbrot fækkaði um rúmlega helming á höfuðborgarsvæðinu í maí en fleiri brot hafa verið tilkynnt til lögreglu það sem af er ári en á sama tíma undanfarin tvö ár. Ofbeldisbrotum fjölgaði milli mánaða og alvarlegar líkamsárásir voru færri.
616 ofbeldisbrot hafa verið tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu það sem af er ári, sem er fækkun um 79 miðað við sama tíma í fyrra, samkvæmt afbrotatölfræði lögreglu. Þar eru ofbeldisbrot skilgreind sem manndráp eða líkamsmeiðingar.
124 þessara brota rötuðu á borð lögreglu í maí, þar af 23 stórfelldar líkamsárásir, um 3% minna en meðaltal síðustu tólf mánaða.
Tólf kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglu í maí, rúmlega helmingi færri en í apríl þegar þau voru tuttugu og átta. Þrjátíu kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í fyrra og meðaltal síðustu tólf mánaða er 26. Brotin eru ekki sundurliðuð nánar.
Þó að tilkynningar hafi verið töluvert færri í síðasta mánuði er heildarfjöldi tilkynninga það sem af er ári með svipuðu móti og undanfarin ár og þeim hefur fjölgað frá því á sama tíma í fyrra.