Maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur, þann 4. maí, fundinn sekur um hótanir í garð annars manns.
Brotin voru framin á um eins og hálfs mánaðar tímabili sumarið 2023. Var ákærði annars vegar sakaður um að senda brotaþola fjölmörg illa stafsett textaskilaboð sem innihéldu hótanir um misþyrmingar, líflát og kynferðislegt ofbeldi.
Hins vegar var hann sakaður um að hafa sent brotaþola hljóðskilaboð sem innihéldu efnislega sömu hótanir og textaskilaboðin, en þau voru eftirfarandi:
„Hey ég nenni ekki að tala við þig lengur af því að þú veist, þú ert alltaf í glugganum skíthræddur að hringja á lögguna og eitthvað. Þú veist ef við komumst inn í íbúðina þína hjá þér tökum af þér símann og vinur minnn er rosalega mikill hommi og hann vill nauðga þér í þrjá daga og svo bara látum við millifæra allt á þig og tökum allt úr íbúðinni og svo skuldar þú mér 1 ár í íbúð já. Takk fyrir að borða allan matinn minn eitthvað og stela af mér matarklipps og halda að ég sé ekki með þetta á fucking call recorder fyrir fucking 2 dollara ógeðslega paddan þín.“
„Hey sickass rónapadda, þú ert umtalaður og það eru margir sem vilja berja þig alveg frekar illa en þegar ég sé þig þá mun ég blinda þig og lama þig. Ég er ekki að djóka því ég drap kærustu mína og ég drep þig næst, þú býrð náttúrulega bara við hliðina á mér.“
Edrú að jafna sig eftir heilablóðfall
Ákærði játaði brot sín skýlaust. Einnig kemur fram í dómnum að hann hafi snúið við blaðinu, sé hættur fíkniefnaneyslu og hafi fengið heilablóðfall sem hann sé að jafna sig á, sé í endurhæfingu, en brotin voru framin fyrir tæplega þremur árum.
Niðurstaðan er vægur dómur, 30 daga skilorðsbundið fangelsi.