Kona ól barn fyrir utan verslun Elko í Skeifunni um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Þetta staðfestir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Barnið fæddist nokkrum mínútum áður en sjúkrabílar komu á staðinn.
„Barnið kom hratt og snöggt og fæddist fyrir utan Elko, þarna á planinu. [...] Þetta gekk vel. Barnið var farið að gráta þegar við komum,“ segir Sigurjón.
Hann segir móðurina og barnið hafa verið flutt á fæðingardeild Landspítalans.
Það er ekki einsdæmi að börn komi í heiminn við óvenjulegar kringumstæður. Síðasta sumar eignaðist par í Mosfellsbæ dreng í miðjum Hvalfjarðargöngum. Bíllinn var á ferð en þau höfðu ákveðið að eiga son sinn á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi.