„Ertu að segja mér að ég endi í hjóla­stól?“ - Vísir

„Ertu að segja mér að ég endi í hjóla­stól?“ - Vísir

„Ertu að segja mér að ég endi í hjóla­stól?“ - Vísir

Birgir greindist með MS-sjúkdóminn fyrir tveimur árum.

MS er sjúkdómur sem flestir hafa einhvern tímann heyrt nefndan en færri þekkja í raun. Hann er ekki óalgengur, en er samt sjúkdómur sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði, sjálfsmynd og daglegt líf þeirra sem greinast. Fyrir marga er orðið sjálft hlaðið ótta og ranghugmyndum; hugmyndum um hjólastól, fötlun og líf sem breytist á einu augabragði. Reynslan getur þó verið mjög ólík milli einstaklinga og Birgir komst fljótt að því að hans stærsta verkefni var ekki aðeins að lifa með sjúkdómnum, heldur líka að losna undan þeim myndum sem hann hafði sjálfur gert sér af honum.

Meðtók ekkert

MS-einkennin byrjuðu að láta á sér kræla hjá Birgi með mjög sakleysislegum hætti.

„Ég fór að finna fyrir dofa undir iljunum. Ég var búinn að vera í útlöndum, í stuttri vinnuferð, og kenndi fluginu um; hélt að ég væri bara með einhvern náladofa eftir flugið. En svo liðu nokkrir dagar og þessi dofi hvarf ekki.“

Birgir fór á heilsugæsluna. Þar var honum sagt að bíða í nokkra daga en koma aftur ef þetta versnaði. Það gerði það. Dofinn færðist upp í vinstri fótinn. Á CrossFit-æfingu ætlaði hann að skokka aðeins en þá brást fóturinn honum.

„Þá hugsaði ég með mér: „Ókei, það er eitthvað mikið að, ég verð að láta tékka á þessu.“ Fólkið sem þekkir mig vissi að ég væri mjög sjúkdómahræddur þannig þetta tók á. Daginn eftir fór ég á bráðamóttökuna og þá var dofinn kominn upp í magann vinstra megin og yfir vinstri rasskinnina.“

Á bráðamóttökunni voru gerðar ýmsar rannsóknir. Það hættulegasta var útilokað, meðal annars heilablóðfall. Birgir var bókaður í segulómun. Læknirinn tengdi einkennin að einhverju leyti við bakið en Birgir upplifði að það væri kannski ekki öll skýringin. Hann vissi þó ekki hvað var í vændum. MS var ekki á listanum yfir það sem honum datt í hug.

„Einhverjum dögum eftir að ég fór í segulómtækið hringdi heimilislæknirinn minn í mig og sagði að það væri grunur á því að þetta væri MS. Mín fyrstu viðbrögð voru að segja: „Ha? MS? Það getur ekki verið.“ Ég var ekki að ná þessu. MS var það seinasta sem mér datt í hug að þetta gæti verið.“

Daginn eftir hringdi ritari frá Landspítalanum. Læknir vildi hitta hann. Hann átti að mæta klukkan eitt. Þetta var um tíuleytið á miðvikudegi. Meira var ekki sagt.

Birgir lýsir sjálfum sér sem manni sem verður stressaður hjá læknum. Svo stressaður að hann hættir nánast að hlusta. Hann vill bara komast út.

„Þess vegna man ég varla hvað hún sagði, fyrr en undir lokin. Þá greip hún í lærið á mér og sagði: „Áður en þú ferð verð ég að segja þér að þú ert með MS.““ Ég meðtók það ekki strax. Ég stóð bara upp og sagði: „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Hún var fljót að segja mér að svo væri alls ekki, enda væru komin svo góð lyf við sjúkdómnum í dag. Hún reyndi að útskýra þetta fyrir mér en ég meðtók ekki neitt. Svo fórum við heim til mömmu og pabba, þar sem ég sagði þeim frá þessu. Það brotnuðu allir niður. Þetta var alveg glataður dagur. Það er enginn í ættinni minni, hvorugu megin, sem man eftir einhverjum með MS. Fólk var örugglega mjög hissa að heyra þetta með mig.“

Birgir var heilsuhraustur, tveggja barna fjölskyldufaðir á besta aldri þegar hann greindist með MS sjúkdóminn.Aðsend

Hamfarasögur

Fyrstu dagarnir eftir greininguna fóru í ótta, vangaveltur og netleit. Eins og gerist gjarnan þegar fólk fær alvarlega greiningu reyndi Birgir að lesa sér til á netinu.

Það var ekki góð byrjun.

„Veröldin hrundi eiginlega bara við þessa greiningu. Ég sá þetta allt saman svo hræðilega fyrir mér. Ég fór inn á Facebook-síðu fyrir MS-greinda. Þar var fólk að skrifa hluti eins og: „Núna er ég kominn á það stig að ég get ekki lengur pissað,“ eða: „Ég get ekki lengur staðið upp,“ eða: „Höndin mín er farin.“ Ég yfirgaf þessa síðu bara strax. Ég gat ekki lesið þetta.“

Birgir fékk greininguna á miðvikudag.

„Ég mætti ekki í vinnu á fimmtudegi og föstudegi. Svo hringdi yfirmaðurinn minn, hann Trausti Björn, í mig á föstudeginum og spurði hvort ég vildi koma í hádegismat. Ég sagði já og við fórum saman að borða. Ég spjallaði bara við hann. Hann var ótrúlega næs og sagði bara: „Taktu þér þann tíma sem þú þarft.“ Svo leið helgin og ég gerði ekki annað en að hugsa um þetta. Ég var að gera sjálfan mig vitlausan. Svo mætti ég aftur í vinnuna á mánudeginum. Ég veit ekki hversu gáfulegt það var, en ég varð bara að dreifa huganum.“

Þegar Birgir greindist fékk hann að vita að hann hefði líklega verið með sjúkdóminn lengi án þess að vita af því, jafnvel í tíu ár eða meira. Í segulómun sáust merki um fyrri köst, eða ör í taugakerfinu. Birgir lýsir því á einfaldan hátt: köstin skilja eftir sig ör, líkt og þegar maður sker sig.

Tveimur árum eftir greininguna er Birgir ekki laus við MS. Hann er enn minntur á sjúkdóminn á hverjum morgni.Aðsend

Áminning á hverjum morgni

Fyrsta sumarið eftir greininguna reyndist erfitt.

„Eftir að greiningin lá fyrir átti ég erfitt með marga hluti í svolítið langan tíma, til dæmis að fara í fótbolta með strákunum fyrsta sumarið eftir greiningu. Ég greindist í apríl og um sumarið vorum við mikið í útilegum eins og venjulega. Ég gat ekki sparkað í fótbolta með þeim og það var hræðilegt. Einu sinni var ég í útilegu með vinum og vinafólki. Allir voru með börnin sín og að reyna að spila fótbolta. Ég vildi bara hætta og fór upp í tjald. Ég táraðist eiginlega. Mér fannst lífið bara glatað.“

Einkennin gengu þó smám saman til baka. Það tók hins vegar langan tíma.

„Iljarnar, löppin og allt þetta, það tók náttúrulega tíma að ganga til baka. Þetta var mjög erfiður tími, hvað þetta tók langan tíma að lagast. En einkennin gengu mestöll til baka, nema þessi dofi undir iljunum sem virðist ekki ætla að fara. Skemmdin á taugakerfinu hefur verið bara það mikil að mögulega mun þetta aldrei lagast. Það sem er pirrandi er að þegar ég stíg í lappirnar á hverjum einasta morgni þá er ég bara: „Já, einmitt, þú ert með MS.“ Ég er alltaf minntur á það. Ég losna aldrei alveg við það. Það er eiginlega það pirrandi við þetta núna. Ég er alveg kominn með allt til baka nema pirringinn undir iljunum.“

Æfing í æðruleysi

Í dag segir Birgir stöðuna engu að síður vera frekar ágæta. Hann fer árlega í eftirlit og sjúkdómnum er haldið niðri með lyfjum, líftæknilyfi sem hann fær í æð. Eftir að lyfjagjöfin hófst hefur ekkert nýtt kast komið.

„Það eru auðvitað bara frábærar fréttir og það virðist sem að lyfið sé að virka á mig, eins og staðan er í dag.“

Að byrja aftur í CrossFit var þó ekki einfalt. Það tók tíma. Það þurfti að byggja upp traust á líkamanum aftur. En fyrir Birgi skiptir máli að geta gert hluti sem tengjast því hver hann er, ekki aðeins því hvað hann hefur greinst með.

„Það er skrítið að segja það núna, en ég er í rauninni pínulítið þakklátur fyrir greininguna, því þetta hefði getað verið miklu verra. Það er hægt að vera með síversnandi MS sem gengur ekki til baka. Ef ég hefði lent í því, til dæmis með dofann vinstra megin, þá hefði ég bara alltaf verið þannig. Svo gæti eitthvað annað gerst, til dæmis dofi í hægri hendinni, og þá væri hún bara farin. Þetta hefði getað lent annars staðar, til dæmis í heilanum eða á öðrum stað. Þetta hefði alveg getað verið verra. 

En ég er að vísu enn þá að lenda í því, núna tveimur árum eftir að ég greindist, að þegar ég fer til dæmis í útilegu eða hitti fullt af fólki, þá spyr kannski einhver: „Jæja, Birgir, hvernig gengur með MS eða veikindin?“ Og þá kemur þessi hugsun allt í einu: „Ah, já, ég er með MS.“ Það er skrítin upplifun. Maður vill helst ekki að allir horfi á mann sem einhvern sjúkling. Eða að fólk komi til mín og spyrji: „Er ekki allt í lagi með þig?“ eða „Hvernig hefur þú það í dag?“ eða eitthvað slíkt.“

Birgir segir það hafa tekið sig tíma að sætta sig við orðinn hlut.

„Mér er sagt að lyfin geti haldið þessu niðri, eða tekið mesta höggið þegar kast kemur. Það er alveg séns á að þetta fari yfir í síversnandi, en læknirinn hefur held ég ekki sagt það beint við mig. Ég reyni bara að hugsa ekki um það. Það er eins og að hafa áhyggjur af því að fá heilablóðfall eða eitthvað. Það er ekkert sem segir að það eigi að gerast, þó að það hafi auðvitað komið fyrir. Þannig að ég ýti því bara í burtu. Ég er ekkert að pæla í því.“

MS-félagið

Nú ætlar Birgir að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu og safna áheitum fyrir MS-félagið. Það er rökrétt framhald af því sem félagið hefur gefið honum. Hann fékk stuðning þegar hann þurfti á honum að halda. Nú vill hann styðja við félagið til baka.

Stuðningurinn frá MS-félaginu hefur skipt hann miklu máli.

„Læknirinn sagði við mig á sínum þegar ég greindist: „Endilega tékkaðu á MS-félaginu. Það er ýmislegt sem þú getur gert þar.“ Þá byrjaði ég að gúggla og lesa mér til. Mér var líka ráðlagt af mannauðsfulltrúanum hjá okkur í BL, þar sem ég vinn, að tala endilega við sálfræðing. Ég hafði aldrei gert það og var frekar skeptískur á það. En í gegnum MS-félagið fékk ég til dæmis aðgang að sálfræðingi, yndislegri konu. Við áttum samt mjög góð samtöl. Hún lét mig gera ýmislegt sem ég vissi ekki af áður.

Eitt sem hjálpaði mér mjög mikið var að leyfa kvíðanum bara að koma. Ef maður er alltaf að reyna að ýta honum frá sér þá verður hann sterkari. Hún sagði: „Hvað ertu hræddastur við?“ Ég var hræddur við að enda í hjólastól, getum orðað það þannig. Hún sagði þá: „Leyfðu því bara að koma. Leyfðu þér að líða þannig. Leyfðu þér að vera hræddur. Það líður yfir.“ En ef þú reynir alltaf að ýta þessu frá þér og segir: „Hættu að hugsa um þetta,“ þá hættirðu aldrei að hugsa um það. Það hjálpaði mér ótrúlega mikið að heyra þetta. Að segja bara: „Ókei, ég ætla bara að leyfa mér að vera ógeðslega hræddur.“ Og svo leið það hjá.“

Í gegnum félagið kynntist Birgir líka fólki sem var sjálft með MS.

„Þar hitti ég meðal annars Svavar, sem var stærðfræðikennarinn minn í grunnskóla. Hann hafði þurft að hætta að kenna á sínum tíma eftir að hafa greinst með MS og ég mundi alltaf eftir því og þetta sat í mér, því Svavar var svo frábær kennari og vel liðinn. Ég sá að hann var í hópi innan MS-félagsins sem heitir Kveðlur, fyrir MS-greinda sem eru aðeins eldri, þrjátíu og fimm ára og eldri. Ég sendi honum skilaboð og spurði hvort ég gæti komið, og hann sagði bara endilega. Ég var búinn að sjá þennan hóp fyrir mér eins og einhverja „zombies“. Ég hugsaði: „Guð minn góður, á ég að þora að koma?“

Ég var búinn að sjá fyrir mér einhverja senu úr Walking Dead; fólk í hjólastólum, með stafi og allt byrjað að hristast. Ég var hræddur um að verða bara hræddari eftir að hafa séð fólk með sama sjúkdóm og ég. En þetta var auðvitað alls ekki þannig. Það voru jú einhverjir með stafi og einhverjir sem greindust fyrir mörgum árum þegar lyfin voru ekki eins góð í dag. En það var ótrúlega fínt að hitta þetta fólk. Við hittumst einu sinni í mánuði og ég missi nánast aldrei af hittingi. Þessi hópur innan MS-félagsins hefur eiginlega gefið mér mest. Að geta rætt við einhvern sem er að ganga í gegnum nákvæmlega það sama og þú er bara ómetanlegt. Fólkið í kringum mann sýnir auðvitað mikla samúð og allt það, en það munar rosalega miklu að ræða við fólk sem skilur þetta.“

Tveimur árum eftir greininguna er Birgir ekki laus við MS. Hann er enn minntur á sjúkdóminn á hverjum morgni.

„Allir vinir mínir, læknirinn og fólkið í kringum mig segja að þetta geti bara verið allt í lagi og ég ætla bara að trúa því. Ég gæti alveg farið í svartnætti og farið að hugsa: „Ef“ og „hefði“ og allt þetta. En ég ætla bara ekki þangað.“

Hér má heita á Birgi og styðja við starfsemi MS félagsins.

Heimasíða MS félagsins.

#endi #ertu #hjólastól #mér #segja


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262908371d/-ertu-ad-segja-mer-ad-eg-endi-i-hjola-stol-

📰 Aðrar fréttir

Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið
Stjarnan úr Mean Girls, Daniel Franzese, hefur opnað sig um hvernig honum tókst að léttast um 65 kg.„Ekkert áfengi, enginn sykur, æfingar fjórum sinnu...
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Ástin blómstrar Ástin blómstar hjá grafíska hönnuðinum og lisakonunni ...
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Seðla­bankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu - Vísir
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað fyrir helgi að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mælist enn töluvert yfir markmiði Seðlaba...
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Við vitum ekki hvort þetta sé Reta eða bara eitthvað kínverskt piss“
„Við höfum heyrt bara í gegnum lyfjastofnanasamstarf, og í lyfjafræðiheiminum, að það er rosa algengt að þegar fólk er að taka inn svartamarkaðslyf, þ...
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ Kostn­að­ur vegna við­gerða og við­halds á tveim­ur grunn­skól­um í Reykja­nes­bæ er kom­inn í tíu mi...
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu - Vísir
Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flu...
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
📅 12.10.2026 👁️ 2
Rain pre-alert lifted as bank holiday Monday weather improves
The Canary Islands Government has officially lifted the rain pre-alert affecting Tenerife, Gran Canaria, Lanzarote, Fuerteventura and La Graciosa, fol...
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
📅 12.10.2026 👁️ 2
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA
Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað rannsókn á nafnlausum heimildarmönnum sem koma fram í heimildamyndinni NAZA.Heimildarmyn...
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól - Vísir
Í dagbók lögreglu segir að fjórir hafi verið hýstir í fangaklefa í morgun. Þar er einnig sagt frá því að eldur hafi kviknað í mannlausum bíl fyrir uta...
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
📅 12.10.2026 👁️ 2
National General Strike called in Spain and the Canary Islands over housing crisis
A nationwide general strike has been called in Spain, including the Canary Islands for Wednesday 11th November, with the country's housing crisis at t...
Vilja árleg þjóðarsamtöl
📅 12.10.2026 👁️ 2
Vilja árleg þjóðarsamtöl
Niðurstöður Samtalsins voru kynntar í Hörpu í gær. Samtalið fór fram á laugardag, þegar fólk settist niður í rúmlega 20 skólum víða um land og reyndi ...
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
📅 12.10.2026 👁️ 3
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
Addressing the Commons, Burnham is expected to say that a new deal with the EU could help tackle illegal immigration and boost economic growth.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
📅 12.10.2026 👁️ 3
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, BBC finds.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
📅 12.10.2026 👁️ 2
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth, BBC finds
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, investigation finds.
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
📅 12.10.2026 👁️ 3
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skem...
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
📅 12.10.2026 👁️ 3
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
Einn var drepinn og ellefu særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi Arabíu, í gærkvöld. Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á mannskæðri árá...
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
📅 12.10.2026 👁️ 3
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti grein...
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
📅 12.10.2026 👁️ 4
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
Fimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða...
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
📅 11.10.2026 👁️ 3
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
The critically endangered apes were rescued from intense wildfires that destroyed their habitat in August and September.
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands greindi frá handtökunni í færslu á X og hrósaði lögreglunni fyrir skjót og góð viðbrögð.Greint var frá því í dag...
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
Hópurinn heldur í leiðangurinn á vegum Purdue-háskóla í Indiana í Bandaríkjunum og ALI (Archaeological Legacy Institute). Gert er ráð fyrir að áhöfnin...
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
Landsvirkjun þurfti að leggja af starfsemi í höfuðstöðvum sínum við Háaleitisbraut 68 eftir að myglu varð þar vart 2022.Líklega er ekkert stórhýsi á h...
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
📅 11.10.2026 👁️ 3
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
Brad Smith calls for global rules on AI, and says the UK is in the "best position" to lead the charge.
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
📅 11.10.2026 👁️ 4
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
📅 11.10.2026 👁️ 2
Healey faces £35bn Budget challenge to meet spending pledges, says think tank
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
📅 11.10.2026 👁️ 2
UK weather: Remnants of hurricane Isaias to help bring warm weather this week
Close to record-breaking warm nights are possible this week as warmer air heads for the UK.
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife ...
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
Úkraínumenn búa sig undir veturinn sem óttast er að verði erfiður. Tanya Korolenko, sem býr í höfuðborginni Kyiv, segir stöðugar drónaárásir reyna mei...
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar h...
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Se...
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulag...
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
📅 11.10.2026 👁️ 4
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
All asylum applications would be rejected and existing ones voided, with all claimants marked for deportation.
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir...
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrg...
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
📅 11.10.2026 👁️ 4
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti á...
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí ...
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 5
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að það sé „köld tuska“ í andlitið á Úkraínumönnum og stuðningsþjóðum þeirra að Donald Trump Bandaríkja...
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
📅 11.10.2026 👁️ 4
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti fy...
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
Unnur segist taka því hlutverki mjög alvarlega að sveitarfélögin í landinu beri ábyrgð á menntun grunnskólabarna. „En til þess að geta lagað það sem s...
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Dómsmálaráðuneyti Ban...
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
📅 11.10.2026 👁️ 4
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
Rescuers moved the apes after their habitats were threatened by intense wildfires over the summer.
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
Sæll og takk fyrir einlæga spurningu. Stutta svarið er já. Það sem þú lýsir er eðlilegt og það er ekkert mótsagnakennt við að sakna konunnar þinnar sá...
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
Dýragarðurinn í Jórvíkurskíri á Englandi hefur tilkynnt að tígrisdýrið sem varð manni að bana í gær verði ekki aflífað.Tígrisdýrið réðst á manninn þeg...
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
📅 11.10.2026 👁️ 4
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
Lewis Hamilton's incorrect strategy call during the Singapore Grand Prix means Kimi Antonelli can win the world title at the next race in Austin.
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
Austfirðingar og Eyjamenn vilja ekki vera í sama lögregluembætti og hafa óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra. Hún hefur boðað fækkun lögregluembætt...
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
Er þetta meðal þeirra 69 mála skráðu í kerfi lögreglu í dag. Innbrotin áttu sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköllum í Miðbæ, Vestur...