Ulf Kristersson, sitjandi forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtogi Moderaterna, fékk í gær umboð til að mynda nýja ríkisstjórn. Þetta gerðist eftir að Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, var ekki samþykkt í þinginu sem forsætisráðherra - nokkuð sem var viðbúið. Hennar tilraun var sú þriðja til að mynda ríkisstjórn frá kosningum sem fóru fram 13. september.
Magdalena Andersson leiðtogi Jafnaðarmanna hefur í tvígang reynt að mynda stjórn Rauðu blokkarinnar, sem hennar flokkur leiðir. Það hefur ekki tekist, einkum þar sem Vinstri flokkurinn krefst þess að sitja í ríkisstjórn en Miðflokkurinn er á móti því. Þingið felldi svo tillögu um að Andersson yrði forsætisráðherra.
Elisabeth Thand Ringqvis fékk þá umboðið og leitaði þá til flokka bæði í rauðu og bláu blokkinni. Það gekk heldur ekki upp og þingið felldi hana sem forsætisráðherraefni í gær.
Kristersson sagði á blaðamannafundi í gær að hann ætti ekki auðvelt verkefni fyrir höndum. „Ég sé fyrir mér að þetta verði erfitt, sennilega mjög erfitt. En sannarlega ekki ómögulegt,“ sagði hann.
Það sem gerir stjórnarmyndunina aðallega erfiða er að Kristersson þarf stuðning utan bláu blokkarinnar til að verja ríkisstjórnina vantrausti. Eini möguleikinn til þess er hjá Miðflokknum. Sá flokkur vill ekki vera í ríkisstjórn með Svíþjóðardemókrötum, sem aftur gera kröfu um að sitja í ríkisstjórn. Og á meðan hvorugur flokkurinn gefur eftir næst ekki að mynda ríkisstjórn þessara flokka.
Eins og áður segir er tveimur atkvæðagreiðslum um forsætisráðherra á þinginu nú lokið. Ef þingið greiðir atkvæði fjórum sinnum um forsætisráðherra án þess að hann verði samþykktur, verður að boða til nýrra kosninga. Það hefur ekki gerst síðan árið 1958. Mats Knutson stjórnmálaskýrandi sænska ríkisútvarpsins sagði við RÚV um helgina að líkur á aukakosningum færu vaxandi. Hann telur þó að lausn finnist áður, þó að hún sé ekki í sjónmáli. Þá telur hann nánast útilokað að Ulf Kristersson takist að mynda ríkisstjórn.
Kristersson ætlar að gefa sér viku til að ræða við flokksleiðtoga áður en greidd verða atkvæði um hann sem forsætisráðherra í þinginu.