Í fjórtándu Druslugöngunni í Reykjavík í dag ítrekuðu druslur af öllum kynjum andstöðu sína við kynferðisofbeldi, nauðgunarmenningu og gerendameðvirkni. Í ávarpi sínu sagði biskup Íslands ofbeldi þrífast í þögninni og það frelsi að segja frá.
Silja Höllu- Egilsdóttir er í skipulagsteymi Druslugöngunnar. „Við erum ennþá að af því að það er ennþá verið að tala eins og það sé þolendum að kenna ef þau verða fyrir kynferðisofbeldi, hvort sem það eru karlar, konur, kvár eða hverjir sem er,“ segir Silja.
Silja segir margt hafa breyst síðan fyrsta ganga var gengin en breytingarnar gerist of hægt fyrir hennar smekk. Þolendur sem stígi fram séu enn ásakaðir um lygar og athyglissýki.
„Við viljum bara helst biðla til ungs fólks líka að fræða sig og mæta og sýna samstöðu af því það er bara aldrei eins mikilvægt og núna.“
Silja segir mikilvægt að fólk í áhrifamiklum stöðum standi með þeim. Hún fagnaði ávarpi sem biskup flutti þegar gangan var komin á Austurvöll.
Í ávarpi sínu tók Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, fram að það megi ekki láta eins og ofbeldi sé ekki til. Hún kynnti jafnframt samstarfsverkefni Þjóðkirkjunnar og minningarsjóðs Ólafar Töru um handleiðslu og sálgæslu fyrir þau sem standa í stafni í baráttunni.
Markmið verkefnisins er að styðja við andlega heilsu og vellíðan þeirra sem sinna þessu mikilvæga hlutverki, fyrirbyggja kulnun og skapa öruggan vettvang þar sem hægt er að sækja stuðning og styrk.
Í samtali við fréttastofu sagði Guðrún að kirkjan hefði þekkingu og reynslu af því að taka á móti þolendum kynferðis- og heimilisofbeldis. Þangað væru allir velkomnir enda sé kynbundið ofbeldi eitt helsta samfélagsmein á Íslandi.