Mikil óvissa er um friðarviðræður Bandaríkjanna og Íran í dag. Viðræður áttu að fara fram í Islamabad, höfuðborg Pakistan og sagði Donald Trump forseti Bandaríkjanna að samningamenn Bandaríkjanna væru væntanlegir þangað.
Meðal þeirra væru varaforsetinn JD Vance, erindrekinn Steve Witkoff og Jared Kushner tengdasonur forsetans. Samkvæmt fréttum fréttastofunnar AP er Vance þó enn í Bandaríkjunum en hann átti að sögn Trump að leiða viðræðurnar fyrir hönd Bandaríkjanna.
Þá var ekki staðfest að írönsk stjórnvöld myndu yfirhöfuð mæta til fundar við Bandaríkin. Trump hafði uppi efasemdir í dag um að framlengja ætti vopnahléið sem staðið hefur á milli Íran og Bandaríkjanna undanfarnar tvær vikur og lýkur að óbreyttu á miðvikudaginn.
Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans segir árás Bandaríkjahers á íranskt olíuflutningaskip í gærkvöld, hafnbann á íranskar hafnir og tafir á að koma á vopnahléi í Líbanon allt brot á vopnahléssamkomulagi ríkjanna. Masoud Pezeshkian forseti Íran sagði í færslu á samfélagsmiðlum í dag að Íranir myndu ekki gefa eftir vegna valdbeitingar Bandaríkjanna.
Á fimmtudag fara fram áframhaldandi friðarviðræður á milli Ísrael og Líbanon í Washington í Bandaríkjunum. Tíu daga vopnahlé tók gildi hinn 16. apríl en bæði Ísrael og Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa sakað hvort annað um brot á því. Ríkismiðill Líbanon sagði í dag frá sprengingum í Suður-Líbanon. Ísraelski herinn staðfesti að gerðar hefðu verið loftárásir gegn sprengjuvörpum í eigu Hezbollah-samtakanna.