Sveitarfélög úr öllum landsfjórðungum hafa boðið Tækniskólanum lóð fyrir nýjan skóla. Stjórnarformaður skólans segist þakklátur fyrir áhugann - en að óraunhæft sé að hafa skólann utan höfuðborgarsvæðisins.
Eftir að samkomulag við Hafnarfjarðarbæ fór út um þúfur vegna vanefnda bæjarins leitar Tækniskólinn að lóð fyrir nýjan skóla. Til stóð að byggja 30.000 fermetra skólahús við Flensborgarhöfn í Suðurbæ Hafnarfjarðar, áform þess efnis voru fyrst kynnt fyrir rúmum fimm árum og deiliskipulag fyrir svæðið, sem byggir að mestu leyti á að þar verði skólinn, var samþykkt í sumar.
Akranes, Selfoss, Húsavík, Skorradalshreppur....
Þegar þetta lá fyrir brugðust bæði Reykjavíkurborg og Mosfellsbær skjótt við, buðu skólanum lóð og síðan hefur bæst ört í hóp áhugasamra sveitarfélaga.
„Það er Reykjanesbær, Akranes, Selfoss, Akureyri, Húsavík, Borgarfjörður og Skorradalshreppur og Múlaþing,“ segir Egill Jónsson, stjórnarformaður Tækniskólans.
Óraunhæft að vera langt frá höfuðborgarsvæðinu
Spurður hvort forsvarsmönnum skólans hugnist einhver þessara kosta segir Egill að vissulega séu þeir þakklátir fyrir athyglina.
„Og áhugann sem menn sýna þessari byggingu og verknámi í landinu. En við verðum líka að hafa hugfast þá staðreynd að langstærstur hluti nemenda í Tækniskólanum er af höfuðborgarsvæðinu. Þannig að það er óraunhæfur kostur að færa skólann a.m.k. langt út fyrir höfuðborgarsvæðið. Mönnum fannst jafnvel Hafnarfjörður í útjaðri höfuðborgarsvæðisins þegar það var valkosturinn.“
Þessu til viðbótar hefur Tækniskólinn verið í óformlegu samtali við Garðabæ.
Undirbúningurinn nýtist
Egill segir að þó svona hafi farið í Hafnarfirði nýtist undirbúningsvinnan áfram. „Langstærsti hlutinn af þeirri undirbúningsvinnu og tilheyrandi kostnaði mun nýtast, óháð því hvað skólinn verður staðsettur.“
Tækniskólinn hefur látið áætla hversu mikið fé fór í súginn og ætlar að krefjast endurgreiðslu frá Hafnarfirði. „Ég vil ekki nefna þær upphæðir hér og nú. Þær eru líka svolítið háðar framhaldinu,“ segir Egill.