Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins. Áhersla sé lögð á samstöðu og ábyrgð á tímum þar sem mikið sé í húfi fyrir Grindvíkinga og bæjarfélagið.
Þar segir ennfremur að gert sé ráð fyrir að samstarfssamningur og frekari áherslur nýrrar bæjarstjórnar verði kynntar á næstu dögum. Úrslit sveitarstjórnarkosninga voru þannig í bænum að Framsókn fékk þrjár menn, Sjálfstæðisflokkur þrjá og Miðflokkur einn.
Á síðasta kjörtímabili voru Framsókn og Sjálfstæðisflokkur í meirihluta bæjarstjórnar ásamt einum fulltrúa Raddar unga fólksins. Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar verður haldinn 2. júní næstkomandi.