Engin plön um að fjölga ferðum flugvallarstrætós
Flybus er nú án samkeppnisaðila í rútuferðum á milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur. Tillaga starfshóps um að bæta þjónustu strætóleiðar 55 þar á milli hefur setið á hakanum. Leiðin var undanskilin í endurskoðun á leiðakerfi landsbyggðarvagna en ráðuneytið boðar bætta aðkomu Strætó við Leifsstöð.
Ekkert liggur fyrir um að auka tíðni eða lengja þjónustutíma almenningssamgangna til og frá Keflavíkurflugvelli en „áfram verður gengið út frá því“ að þjónustan verði bætt.
Þetta kemur fram í svörum innviðaráðuneytisins við fyrirspurn Heimildarinnar um almenningssamgöngur til og frá flugvellinum en til stendur að gera nýja samantekt á fyrirliggjandi greiningum og tillögum til að móta valkosti til framtíðar á grundvelli Samgönguáætlunar til 2030.
Starfshópur um bættar almenningssamgöngur á milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar lagði til að þjónustutími yrði lengdur og tíðni ferða aukinn á leið 55, einu strætóleiðinni sem gengur á milli flugvallarins og borgarinnar. Þetta var lagt til að framkvæma árið 2025 í skýrslu starfshópsins sem skilað var í september 2024.
Leið 55 gengur frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur en lengi hefur verið gagnrýnt að biðstöð Strætó sé í nokkurri fjarlægð frá flugstöðinni á meðan Flybus rútur Reykjavík Excursions stoppa beint fyrir utan bygginguna.
Airport Direct, sem var samkeppnisaðili …