Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ellefu ökumenn í gærkvöldi og nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- eða fíkniefna. Frá þessu segir í dagbók lögreglu. Einnig voru fimm teknir fyrir ölvunarakstur.
Þá komu þrjár líkamsárásir inn á borð lögreglu. Í einu tilfellinu voru þrír handteknir í miðborginni. Einn var vistaður í fangaklefa vegna málsins.