Eldur kviknaði í þaki fjögurra hæða blokkar í Bryggjuhverfi í Reykjavík. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur sent fjóra dælubíla, tvo körfubíla og allan tiltækan mannskap á staðinn.
Tilkynning barst um eldinn klukkan 10:32. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að vinna hafi staðið yfir á þaki hússins þegar eldurinn kviknaði.
Fréttin verður uppfærð með nánari upplýsingum.