Útbreitt app fyrir heimalestur hefur verið gagnrýnt fyrir að vera dulbúinn samfélagsmiðill fyrir börn. Einn höfunda þess segir það ekki svo slæmt ef börn ánetjist lestri.
Appið heitir Læsir og þar á að skrá lestur barna. Kennarar geta svo séð inni í appinu hvað og hve mikið börnin lesa.
Talsverðar umræður hafa verið um það á samfélagsmiðlum eftir að leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson sagði á Facebook að með því væri verið að þröngva börnum inn á samfélagsmiðil í boði ríkisins.
Meira en helmingur grunnskóla notar Læsi
Þessu hafnar Málfríður Bjarnadóttir grunnskólakennari og einn höfunda Læsis. „Þú getur ekki lækað eða deilt eða neitt svoleiðis. Þannig að nei - þetta er ekki samfélagsmiðill.“
Málfríður er í hópi kennara sem eru höfundar og eigendur Læsis og hún segir appið hafa sprottið af þörf sem þau fundu í störfum sínum.
1.916 kennarar í 102 grunnskólum nota Læsi, hátt í 23.000 nemendur og yfir 30.000 foreldrar.
Þetta er yfir helmingur allra grunnskóla á landinu og um helmingur allra grunnskólabarna.
Fékk undanþágu og vill skjálausan lestrartíma
En þó skólar hafi ákveðið að nota appið - er ekki þar með sagt að allir foreldrar noti það til að skrá lestur barna sinna. Meðal þeirra er Yrsa Þöll Gylfadóttir, rithöfundur og móðir þriggja grunnskólabarna.
„Ég nota það ekki. Við fengum undanþágu í okkar fjölskyldu.“
Hvers vegna ekki? „Ég var ánægð með gamla systemið. Mér fannst það kósí, það er á blaði - alveg eins og bókin,“ segir Yrsa og vísar þar til lestrarhefta sem hafa verið lengi í notkun þar sem skráð er hversu mikið barnið les og hver hlustar á það.
Eitt af því sem Yrsa gerði athugasemdir við var að heimalesturinn hafði, fram að þessu, verið skjálaus tími.
Við vildum ekki fá skjá inn í þessa stund.
„Heimalesturinn er enn þá skjálaus stund og þú þarft ekki að hafa appið opið meðan heimalesturinn á sér stað,“ segir Málfríður.
Meðal þess sem hefur verið gagnrýnt er að með því að lesa safna nemendur stjörnum í appinu og fá umbun fyrir að lesa marga daga í röð. Það sé sama aðferð og notuð sé til að fá fólk til að ánetjast samfélagsmiðlum.
Málfríður segir að þetta sé áhugahvetjandi fyrir börnin.
Ég held að flestir myndu fagna því ef börn myndu ánetjast lestri.
Margir þeirra sem tjá sig um málið á samfélagsmiðlum hafa ekkert á móti þessu tiltekna appi - heldur þeirri þróun að í nútímalífi þurfi sífellt fleiri öpp.
Þrælar appanna?
„Allt í einu erum við komin með mörg öpp sem við reiðum okkur ótrúlega mikið á og við höldum að verði að vera í lífi okkar, sem eru farin að umbuna okkur og hrósa okkur,“ segir Yrsa Þöll. Eða skamma okkur ef við erum ekki að sinna þeim nógu vel. Mér finnst við vera orðnir þrælar þessara appa og þessara tækja. Og þetta er hluti af viðnámi gegn því.“