Ekkert verður af kaupum Ása hf., sem áður var Síminn, á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Á daginn kom að ekki næðist samkomulag um viðskiptin eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar, að því er segir í aðskildum tilkynningum beggja fyrirtækja í kvöld.
Boðað var 12. mars að félögin hefðu náð samkomulagi um helstu skilmála vegna kaupa Símans á vefmiðlunum Vísi, já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsstöðvunum Bylgjunni, Léttbylgjunni, Gullbylgjunni, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Kaupverðið var sagt rúmir fimm milljarðar króna og árstekjur miðlanna rúmir þrír.
Þá sagði Sýn söluna ætlaða til að einfalda starfsemi fyrirtækisins og styrkja rekstrargrundvöll þess til framtíðar. Síminn sagði kaupin á miðlunum falla vel að að því að fyrirtækið veiti fréttir og afþreyingu.
Viðskiptin voru háð niðurstöðum áreiðanleikakönnunar, samþykki stjórna beggja félaga, samþykki eftirlitsaðila og samkomulagi um endanlegan kaupsamning. Frestur til að ljúka gerð endanlegs kaupsamnings er nú liðinn án þess að af honum verði.
Sýn segir samkomulag um einkarétt Ása til samningaviðræðna því úti og samningaviðræðum lokið.
Sýn kveðst hafa uppfyllt forsendur skilmálaskjalsins, meðal annars forsendur fyrir umsömdu kaupverði og um tekjur og rekstrarafkomu.
Niðurstaðan hafi ekki áhrif á afkomuspá Sýnar fyrir 2026, enda „vefmiðlar og útvarpsstöðvar félagsins öflugar einingar í góðum rekstri og munu áfram styðja við kjarnastarfsemi þess.“