Einn þeirra fjögurra sem sæta nú gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á meintum innflutningi á amfetamínbasa með flutningaskipinu Dettifossi er íslenskur ríkisborgari á sextugsaldri.
Maðurinn hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2015 ásamt fjölskyldu sinni eftir að mál hennar vakti mikla athygli í íslensku samfélagi.
Þá hafði Útlendingastofnun ákveðið að vísa fjölskyldunni úr landi, en þeirri ákvörðun var síðar snúið við í kjölfar mikillar opinberrar umræðu og afskipta Alþingis. Þá hafði ákvörðuninni meðal annars verið mótmælt á Austurvelli.
Auk hans sitja þrír aðrir íslenskir ríkisborgarar í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar. Tveir skipverjar Dettifoss á þrítugsaldri og einn karlmaður á fertugsaldri.
Ákærur á hendur þeim voru gefnar út í málinu í gær, samkvæmt heimildum mbl.is. Ákæran hefur ekki verið birt sakborningum í málinu.
Flúði heimalandið vegna ótta við glæpamenn
Maðurinn heitir Kastriot Pepaj og er albanskur að uppruna.
Í viðtölum sagði hann að fjölskyldan hefði flúið heimaland sitt vegna ótta við hefndir glæpagengis. Hann sagði jafnframt að hún hefði leitað hingað til lands til að tryggja syni sínum nauðsynlega læknisaðstoð vegna alvarlegs hjartasjúkdóms.
Mikla athygli vakti þegar lögregla mætti að dvalarstað fjölskyldunnar að nóttu til í því skyni að framkvæma brottvísun.
Sonur hjónanna, þá þriggja ára gamall og með alvarlegan sjúkdóm, varð táknmynd málsins þegar mynd birtist af honum í dyragættinni með tuskubangsa í hendi.
Þakkaði þjóðinni stuðninginn
Fjölskyldan var um tíma flutt úr landi, en ákvörðunin var síðar endurskoðuð.
Í kjölfarið fékk hún dvalarleyfi og síðar íslenskan ríkisborgararétt. Maðurinn þakkaði þá Íslendingum opinberlega fyrir stuðninginn.