Edda Falak selur gullfallega íbúð

Fjölmiðlakonan fyrrverandi Edda Falak og sambýlismaður hennar, Kristján Helgi Hafliðason, hafa sett í sölu fallega tveggja herbergja íbúð sína við Holtsgötu 24 í miðborg Reykjavíkur. Ásett verð eignarinnar er 61,9 milljónir króna.
Íbúðin er á þriðju hæð fjölbýlishúss við Holtsgötu í 101 Reykjavík og er skráð 58,6 fermetrar að stærð, þar af er 4,7 fermetra sérgeymsla á jarðhæð. Eigninni fylgir einnig merkt einkabílastæði, sem telst eftirsóknarvert á þessum vinsæla stað í miðborginni.
Samkvæmt sölulýsingu skiptist íbúðin í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Eldhúsið er með ljósri innréttingu, góðu skápaplássi og innbyggðri uppþvottavél. Stofan er björt og rúmgóð með útgengi út á svalir, en harðparket er á gólfum helstu rýma. Svefnherbergið er með fataskáp og baðherbergið er búið baðkari með sturtu og snyrtilegri innréttingu.
Á jarðhæð hússins er sameiginlegt þvottahús auk sérgeymslu íbúðarinnar.
Holtsgata er róleg gata í vesturbæ miðborgarinnar þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu. Í göngufæri eru meðal annars matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaðir, heilsugæsla og skólar, auk þess sem miðbær Reykjavíkur og gamla höfnin eru skammt undan.
„Það fór hrikalega vel um okkur á Holtsgötunni, á besta stað í bænum með svalir í suður og einkabílastæði! Fullkomin fyrsta eign,“ skrifar Edda um íbúðina á Facebook.
Edda og Kristján Helgi búa í íbúðinni ásamt syni sínum, en fasteignin er nú komin á sölu fyrir 61.900.000 krónur.