Ólafur og Dorrit hafa verið gift í 23 ár en hafa ekki sést opinberlega saman hér á landi síðan í mars þegar þau mættu saman á útför Davíðs Oddssonar í Hallgrímskirkju. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skilnaðarferli þeirra verið í gangi undanfarna mánuði og farið að sjá fyrir endann á því.
Dorrit hefur að mestu haldið heimili í London samhliða dvöl á Íslandi undanfarin ár en þó komið reglulega til Íslands og dvalið í Mosfellsbænum þangað sem þau hjónin fluttu þegar tuttugu ára forsetatíð Ólafs Ragnars á Bessastöðum lauk sumarið 2016.
Dorrit svaraði skriflegri fyrirspurn fréttastofu um tímamótin á þann veg að þeim Ólafi liði báðum vel og þau væru góðir vinir. Ólafur Ragnar vildi ekkert tjá sig um þessi mál þegar Vísir hafði samband fyrr í sumar.
Hvorugt þeirra hefur tjáð sig formlega um tíðindin en Dorrit skrifaði hins vegar athugasemd við Instagram-deilingu Morgunblaðsins af fréttunum. Orð voru óþörf því Dorrit lét nægja að skrifa sex dropatákn við færsluna, eða „💦💦💦💦💦💦“.
Samkvæmt tjáknalyklaborðinu þá táknar umrætt tjákn svitadropa og er gjarnan notað þegar fólk birtir færslur um líkamsrækt eða sundspretti. Einnig er það gjarnan notað þegar fólk er statt í miklum hita eða þá sem skrauthvörf um óviðeigandi háttalag. Líklegast má þó túlka notkun Dorritar á dropunum sem tár, sorg vegna tímamótanna.
Þá birti Dorrit upp úr hádegi færslu á Instagram frá eyjunni Mykonos þar sem hún er stödd í eldhúsi og fylgist með manni elda vartara.
„Ég eldaði þetta ekki en ég mun elda þann næsta,“ segir sumarleg Dorrit í myndbandinu og bætir síðan við: „Þetta er matreiðslumeistaraverk. Ykkur er öllum boðið þegar ég elda hann í næstu viku.“