Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur hafið sakamálarannsókn á hendur E. Jean Carroll. 2023 var Donald Trump Bandaríkjaforseti dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega gegn Caroll. Honum var gert að greiða henni fimm milljónir dala í skaðabætur. Hann var auk þess dæmdur til þess að greiða Carroll rúmar 83 milljónir dala fyrir ærumeiðingar. Trump hefur áfrýjað fyrri dómnum til hæstaréttar Bandaríkjanna og sagst ætla að gera það sama við seinni dóminn.
Rannsókn dómsmálaráðuneytisins snýr að því hvort Carroll hefði framið meinsæri í málunum tveimur sem hún höfðaði gegn Trump. Í frétt CBS segir að rannsóknin velti á því hvort Carroll hafi logið í vitnaskýrslu þegar hún sagðist ekki hafa fengið utanaðkomandi fjárstuðning við málsóknirnar. Lögmenn Trumps lögðu síðar fram gögn sem sýndu að Reid Hoffman, einn af stofnendum LinkedIn hefði greitt fyrir hluta lögfræðikostnaðar Carroll.
Í frétt New York Times segir að ítök Trumps hafi aukist innan vegga dómsmálaráðuneytisins á síðustu misserum. Stjórnendur í ráuðneytinu veiti honum litla mótstöðu á sama tíma og hann heldur í hefndarherferðir gegn þeim sem hafa höfðað mál gegn sér eða boðið honum birginn með öðrum hætti á síðustu árum.
Síðan Trump tók aftur við embætti í byrjun síðasta árs hefur hann ítrekað óskað eftir því við dómsmálaráðuneytið að það sæki fjölda andstæðinga hans til saka.