Dísilverð hefur aldrei verið hærra í Bandaríkjunum en í dag. Gallonið af dísil er komið í 6,27 dollara. Gallonið er 3,79 lítrar. Ástæðan er miklar verðhækkanir vegna stríðs Bandaríkjanna og Írans sem hefur lokað að mestu fyrir eldsneytisútflutning frá Persaflóa. Til samanburðar fór dísilverðið mest í 5,82 dollara í júní 2022 eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur kennt árásum Úkraínuhers á eldsneytisinnviði í Rússlandi um hátt dísilverð. Arne Lohmann Rasmussen, aðalgreinandi hjá Global Risk Mangement, sagði að það myndi bæta úr framboði á dísil ef Úkraínumenn hættu sínum árásum. „En skorturinn á unnum afurðum frá Miðausturlöndum skiptir mun meira máli.“
Það er ekki aðeins dísilverðið sem er í hæstu hæðum. Álag á bandarísk ríkisskuldabréf hefur ekki verið hærra í 19 ár. Greinendur telja að fjárfestar geri ráð fyrir að bandaríski seðlabankinn hækki vexti í vikunni.