Dekk og líkamsrækt skila milljónum í kassann
Framkvæmdastjóri Dekkjahallarinnar og eigandi líkamsræktar verma toppsætin yfir þau tekjuhæstu á Austurlandi í ár.
Jóhannes Jóhannesson er tekjuhæsti einstaklingurinn á Austurlandi þetta árið en hann var með 398 milljónir króna í árstekjur samkvæmt upplýsingum hjá skattinum og birtust í tekjublaði Heimildarinnar. Fátt er vitað um Jóhannes annað en að hann er frá Fjarðarbyggð. Hann er í 64. sæti yfir þá efnuðustu á landinu öllu. Í öðru sæti er Þorsteinn Kristjánsson forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Eskju á Eskifirði. Hann er með 358 milljónir í árstekjur, þar af 47 milljónir í fjármagnstekjur og vermir 83. sætið yfir þá tekjuhæstu á landinu öllu.
Kona vermir þriðja sætið, en það er Jóna Bryndís Eysteinsdóttir, en hún rekur meðal annars líkamsræktarstöð ásamt því að vera tengd öðrum fyrirtækjarekstri á Austurlandi.
Í fjórða sætinu er annar starfsmaður Eskju, það er framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs fyrirtækisins, Páll Snorrason, með 180 milljónir króna. Sigþór Arnar Halldórsson í Múlaþingi er skráður í fimmta sætinu yfir þá tekjuhæstu á Austurlandi. Sá er fæddur 1963 og með …