Það er mbl.is sem greinir frá en þar er haft eftir Camillu að þau séu enn bestu mátar en hún hefur nú flutt búferlum að Hellishólum ásamt sonum sínum.
Þá er einnig haft eftir henni að þau heyrist reglulega og það sé mikill samgangur en þau eiga bæði börn úr fyrri samböndum, Camilla á tvö börn og Valli eitt.
Camilla var viðmælandi í viðtalsliðnum Ást er á Vísi í september 2023 og lýsti Camilla sambandinu sem „týnda púslinu sem fannst undir sófa, eða vel smurða tannhjólinu sem einfaldlega virkar.“
Hún sagði þau bæði hafa gengið í gegnum alls konar lífsreynslu áður en þau tóku saman og henni þætti hvað vænst um það í sambandinu hversu opinská, heiðarleg og samstíga þau væru.