Á Tónlistarhátíð Kótelettunnar verður að venju tónleistarveisla þar sem hátt í 30 tónlistaratriði verða á dagskrá. Á BBQ Festival Kótelettunar bjóða íslenskir kjötframleiðendur uppá allt það besta á grillið. Síðast en ekki síst verður einstök fjölskylduhátíð stútfull af skemmtilegri afþreyingu. Bylgjulestin missir ekki af neinu og tekur púlsinn á gestum.
Hægt verður að snúa lukkkuhjóli Bylgjunnar og geta heppnir gestir unnið gjafabréf frá N1 , frískandi 7up Pink drykki, Kitkat og áskrift að Sýn+. Talaria rafmótorhjól og IKAMPER tjöld verða sýnd á svæðinu og Samgöngustofa fjallar um umferðaröryggi.
Næstu stopp Bylgjulestarinnar:
18. júlí Götubitahátíðin í Hljómskálagarðinum
25. júlí Bylgjulestar útilega á Flúðum