Dæmdi stríðsglæpamaðurinn Ratko Mladić, sem bar viðurnefnið Bosníu-slátrarinn, verður jarðsunginn í Belgrad, höfuðborg Serbíu í dag.
Mladić var einn af leiðtogum Bosníu-Serba og andaðist í fangelsi undir lok ágúst þar sem hann sat af sér lífstíðardóm fyrir þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð í borgarastyrjöldinni í Júgóslavíu á tíunda áratug síðustu aldar.
Hæst ber fjöldamorðin í Srebrenica 1995 þar sem menn hans myrtu 8.000 Bosníu-múslíma, karlmenn og drengi.
Brotin voru þó mun fleiri, til að mynda þriggja ára umsátur Serba um bosnísku höfuðborgina Sarajevo í þrjú ár þar sem leyniskyttur og stórskotalið drápu þúsundir, karla, kvenna og barna, á götum úti og inni á heimilum borgarbúa.
Sonurinn Darko kveðst stoltur af föður sínum. Kista Mladićs var flutt til Serbíu í flugvél á vegum ríkisstjórnarinnar síðasta fimmtudag, hjúpuð þjóðfánanum og tekið var á móti henni með hermannlegri virðingu.
Lík Mladićs liggur í kirkju í fimm klukkustundir fyrir útförina og verður að henni lokinni flutt í nærliggjandi kirkjugarð. Búist er við að tugþúsundir verði viðstaddir útförina og stjórnvöld heita að tryggja öryggi í höfuðborginni. Forsetinn Aleksandar Vučić verður ekki meðal gesta að sögn vegna annarra áður ákveðinna skylduverka.
Margir Serbar líta enn á Mladić sem hetju, ekki síst í bosníska sjálfstjórnarhéraðinu Republika Srpska. Íbúar þar söfnuðust saman og héldu minningarathafnir þegar fréttist af andláti hans.
Um þrjú hundruð komu einnig saman við minningarathöfn um Mladić í Belgrad á laugardag sem skipulögð var af samtökum fyrrverandi og núverandi serbneskra hershöfðingja.
Denis Bećirović, forseti ríkisráðs Bosníu og Hersegóvínu, segir hryggilegt að ráðamenn í Serbíu samsami sig einhverjum versta morðingja í sögu Evrópu, sem geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir Balkanskagann allan.
Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, aflýsti heimsókn sinni til Serbíu og sagði dýrðarljómann umhverfis andlát Mladićs stangast algerlega á við öll þau gildi sem sambandið hvíli á.