Búið er að hreinsa málninguna af tröppunum við Grafarvogskirkju. Í fyrrinótt var íslenski fáninn málaður yfir regnbogafánann á tröppum Grafarvogskirkju.
Skemmdarverkið hefur verið tilkynnt til lögreglu sem rannsakar hvort um hatursglæp sé að ræða.
Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, sagði í samtali við fréttastofu í gær að á næstu dögum ætlaði kirkjan að safna saman fólki til að mála regnbogafánann aftur á tröppurnar.