Breyting verður á áætlun Herjólfs í fyrramálið þannig að hann siglir frá Vestmannaeyjum klukkan sjö og frá Landeyjahöfn klukkan kortér fyrir ellefu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi.
Þar segir að ferðir frá Landeyjahöfn klukkan 8:15 og úr Eyjum klukkan 9:30 falli niður. Haft verði samband við farþega til að færa bókanir þeirra.
Tilkynnt verði um siglingar það sem eftir lifi dags skömmu eftir klukkan ellefu. Ölduspá fyrir fyrri hluta fimmtudags er óhagstæð fyrir siglingar til og frá Landeyjahöfn og Herjólfur segir að tilkynnt verði um breytingar á áætlun reynist þeirra þörf.