Norski hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik hefur enn einu sinni farið fram á reynslulausn úr fangelsi. Þetta er í þriðja sinn sem hann reynir það frá því hann hlaut hámarksrefsingu sem norsk lög leyfa.
Breivik varð 77 manns að bana í júlí fyrir tæpum fimmtán árum og var dæmdur til 21 árs fangavistar árið eftir. Sakarefnin voru hryðjuverkaárás á stjórnarbyggingar í Osló og á Útey þar sem ungliðar Verkamannaflokksins voru saman komnir.
Það er hámarksrefsing í Noregi en dóminn má framlengja meðan hætta er talin stafa af Breivik. Øystein Storrvik, lögmaður Breiviks, staðfestir beiðnina og segir Breivik lögum samkvæmt fá dómstól til að meta líkurnar á að hann endurtaki brot sín.
Breivik kom sprengju fyrir í miðborg Oslóar sem varð átta að bana og dulbjó sig svo sem lögreglumann og hélt til Úteyjar og skaut þar 69 ungmenni til bana.
Hann hefur verið í einangrun síðan í ágúst 2012 og hefur tvisvar sótt árangurslaust um reynslulausn. Breivik er orðinn 47 ára og breytti nafni sínu á síðasta ári í Far Skaldigrimmr Rauskjoldr af Northrik. Norskir dómstólar hafa talið hann jafnhættulegan samfélaginu og áður.