Reykjavíkurborg hyggst afturkalla lóðaúthlutanir til rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og Félags múslima á Íslandi.
Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir borgina hafa farið yfir lóðaúthlutanir undanfarnar vikur þar sem ekki hafi verið ráðist í uppbyggingu, í sumum tilvikum árum saman.
Athugasemdafrestur liðinn
Hann segir borgina hafa verið í átaki síðustu vikur við að fara yfir úthlutanir lóða sem hafa ekki verið nýttar.
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan fékk lóðir að Bræðraborgarstíg 2 og Bakkastíg 8 árið 2008. Félag múslima á Íslandi fékk lóð að Suðurlandsbraut 76 í september árið 2013. Hvorugt trúfélaganna hefur byggt á lóðunum.
„Þeim var gefinn andmælafrestur 18. ágúst og áttu að skila athugasemdum fyrir 1. september. Engin svör bárust og þess vegna var farið með þessa tillögu inn í borgarráð í gær. Þau sendu tölvupóst og óskuðu eftir því að fá að koma að andmælum. Við ákváðum að verða við því og gefum þeim nokkra daga í viðbót til þess að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og það er alveg sjálfsagt mál.“
Verðmæti í eigu borgarbúa
Einar segir fjölmargar aðrar lóðir hafa verið afturkallaðar nú þegar eða verði afturkallaðar á næstu vikum. Þetta snúi ekki einungis að þessum tilteknu lóðum. Ekki er búið að ákveða hvað verður gert við lóðirnar.
„Ef þetta fer eins og tillagan ber með sér, að lóðin verði afturkölluð, þá fer hún bara í söluferli. Eins og við vitum þá er eftirspurn eftir lóðum á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjavík og við vonumst eftir því að hún verði seld fyrir góðan pening. Það er mikilvægt því þetta eru verðmæti í eigu borgarbúa.“
Geturðu giskað á einhverja upphæð?
„Nei, markaðurinn ræður því hvað hún kostar.“
Er eitthvað sem trúfélögin geta gert til þess að snúa ákvörðuninni við?
„Við þurfum bara að taka á móti þeirra andmælum, þeirra sjónarmiðum og tökum þeim bara vel. Þegar við höfum átt í því samtali þá ræðst framhaldið,“ segir Einar.