Danska ríkisstjórnin hyggst feta í fótspor nokkurra annarra ríkja og setja aldurstakmark á notkun samfélagsmiðla.
Öllum börnum undir fimmtán ára verður þá algerlega bannað að nota miðlana. Christina Egelund, ráðherra vísinda-, mennta- og stafrænna mála, greindi frá þessu í dag. Frumvarp þessa efnis hefur verið í umsagnarferli og til stendur að lög taki gildi 1. júlí á næsta ári.
Opinbert aldurstakmark á flestum samfélagsmiðlum er þrettán ár og í upphaflegum drögum átti að heimila þrettán til fjórtán ára börnum að nota þá með samþykki foreldra eða forráðamanna.