Rúmlega þrítugur palestínskur maður hefur verið ákærður fyrir annars vegar tilraun til manndráps og hins vegar sérstaklega hættulega líkamsárás vegna atvika sem áttu sér stað í úrræði fyrir hælisleitendur á Valhallarbraut í Reykjanesbæ, að nóttu þann 15. júní síðastliðinn.Brotaþolar mannsins eru tveir, annar frá Palestínu og hinn frá Jórdaníu. RÚV greindi frá atvikinu í sumar og kom fram að ágreiningur hefði verið milli íbúa í úrræðinu.
Blóðugt uppgjör hælisleitenda – Palestínumaður ákærður fyrir manndrápstilraun í Reykjanesbæ