Björgunarsveitarliðar voru fengnir til að taka yfir gæslu á tjaldsvæðinu á Borgarfirði eystra eftir slagsmál í nótt. Samkvæmt heimildum fréttastofu kom til átaka á milli þeirra sem önnuðust gæslu á tjaldsvæðinu og gesta.
Málið er til rannsóknar hjá lögreglu.
„Lögreglu barst tilkynning um klukkan hálf eitt í nótt vegna slagsmála og tveir menn voru í kjölfarið fluttir til aðhlynningar,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Austurlandi. „Það er ekkert óskaplega mikið sem við getum sagt núna.“
Enginn var handtekinn vegna málsins.
Fjöldi fólks er kominn á tjaldsvæðið til að sækja hina árlegu Bræðslutónleika. Þar var vonskuveður í nótt og gestir urðu jafnvel að finna sér nýjan svefnstað vegna roks og rigningar. Búist er við álíka veðri í nótt.
Kristján Ólafur segir að tekið verði til skoðunar hvort þörf sé á úrbótum fyrir næstu hátíð.
„Eftir stóra viðburði eins og þennan er rýni af hálfu lögreglu með skipuleggjendum, björgunarsveit og eftir atvikum heilbrigðisþjónustunni og metið hvað og hvort eitthvað mátti betur fara. Slíkur fundur verður haldinn.“
„Þetta var ekki eins og lögreglan vildi sjá þetta“
Áskell Heiðar Ásgeirsson, skipuleggjandi tónleikanna og svokallaður bræðslustjóri, bendir á að tjaldsvæðið sé rekið af öðrum aðilum en þeim sem sjá um Bræðsluna.
„Miðað við þær upplýsingar sem ég hef þá var þarna starfsfólk í gæslu sem kannski misskildi aðeins sitt hlutverk og var ekki alveg að tækla þetta eins og við gerum vanalega,“ segir Áskell Heiðar.
Þeim hafi verið skipt út að frumkvæði lögreglu og Björgunarsveitin Sveinungi beðin um að taka yfir gæslu á tjaldsvæðinu.
„Þetta var ekki eins og lögreglan vildi sjá þetta, þannig þeir gripu inn í og það voru einhverjar breytingar gerðar.“
„Það náttúrlega er leiðindaveður“
„Ég veit ekki hvað maður á að segja. Það náttúrlega er leiðindaveður,“ segir Bergvin Snær Andrésson, formaður Björgunarsveitarinnar Sveinunga.
„Lögregla bað okkur um að koma til þess að aðstoða við gæsluna á tjaldsvæðinu.“
Bergvin segir kvöldið leggjast vel í björgunarsveitarliða þrátt fyrir leiðindaveðrið. Það hafi haft sín áhrif á stemninguna á tjaldsvæðinu í gær. Á tjaldsvæðinu er einkum ungt fólk sem fann mikið fyrir roki og rigningu – tjöld fuku til, skullu saman og voru jafnvel gegnsósa eftir regnið.
„En við þurftum ekkert að hafa afskipti af því þar sem þessir unglingar björguðu sér,“ segir Bergvin. Unga fólkið hafa staðið sig vel í erfiðum aðstæðum. Hann bætir því við að ef til vill hefðu björgunarsveitarliðar komið á svæðið þó að lögregla hefði ekki óskað eftir þeim í ljósi veðurfarsins.
Gera ráð fyrir roki og rigningu í kvöld og nótt
Lögreglan á Austurlandi vekur athygli á því að veður gæti valdið erfiðleikum í kvöld líkt og í gær.
„Gera má ráð fyrir talsverðum vindi með úrkomu á Borgarfirði eystra í kvöld og nótt. Fjöldi gesta er á Borgarfirði vegna tónleika Bræðslunnar. Nokkuð var um að gestir þyrftu í gærkvöldi að leita skjóls vegna hvassveðurs og úrkomu. Komi til svipaðs ástands í kvöld og nótt eru gestir á tjaldsvæðum sem leita þurfa skjóls beðnir um að gefa sig fram við viðbragðsaðila á svæðinu,“ segir í tilkynningu frá embættinu.
„Skipuleggjendur, björgunarsveitin Sveinungi á Borgarfirði og lögregla eru við öllu búin og til aðstoðar.“