Sjá má að Mette-Marit fylgdist með leiknum með trefil um hálsinn ásamt Hákoni eiginmanni sínum en prinsessan er þó enn ekki úrskrifuð af sjúkrahúsinu. Eftir leikinn hélt Hákon svo út í miðborg Oslóar þar sem hann „reri“ með tugþúsundum Norðmanna sem voru að fagna hinum sögulega sigri landsliðsins.
Erling Braut Håland skoraði bæði mörk Norðmanna í leiknum sem lauk 2-1 og skilaði Norðmönnum í átta liða úrslit mótsins þar sem þeir munu mæta Englendingum.
Börn þeirra Hákonar og Mette-Marit – þau Ingiríður Alexandra og Sverrir Magnús – voru hins vegar stödd á leiknum í New Jersey og voru sömuleiðis birtar myndir og myndbönd af þeim að fagna með leikmönnunum, markaskoraranum Håland meðtalinn.