Þetta staðfestir Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við blaðamann Vísis. Hann segir myndbandsupptöku úr öryggismyndavélum apóteksins sýna tvo menn fara inn, beint að lyfjaskápnum, sópa þar að sér lyfjum og hlaupa út. Þjófnaðurinn hafi allt í allt tekið örfáar mínútur.
Vaknað við hávaðann
Þá hafi íbúar í nærliggjandi húsum tilkynnt innbrotið til lögreglunnar en þegar á staðinn var komið hafi þjófarnir verið farnir, bíllinn sem þeir hafi verið á hafi aftur á móti fundist stuttu frá apótekinu. Jóhann segir líkur á því að þeir hafi stolið bílnum áður en hann var nýttur við verknaðinn.
Þá staðfestir hann að engu nema lyfjum hafi verið stolið en ekki liggi fyrir hvaða lyfjum vorru tekin úr skápnum eða hvert verðmæti þýfisins sé. Starfsfólk apóteksins vinni að því að skrá niður hverju hafi verið stolið úr lyfjaskápnum.
Brotist inn í annað sinn
Fyrr í sumar var greint frá því að brotist hefði verið inn í þetta sama apótek. Þá flúði innbrotsþjófurinn á Hopp-deilibíl og í kjölfarið hófst eftirför þar sem þjófurinn keyrði meðal annars yfir göngubrú.
„Ók aðilinn hættulega eftir akbrautum og göngustígum en stöðvaði síðan för á göngustíg í Fossvogi. Reyndi hann þá að komast undan á fæti en var hann stöðvaður og handtekinn eftir stuttan spöl,“ kom fram í yfirliti lögreglu í kjölfar innbrotsins í júlí.
Jóhann segir ekki útilokað að málin tengist en ítrekar að rannsókn vegna innbrotsins í nótt sé nýhafin og ekkert liggi fyrir sem bendi til þess að þau tengist. Rannsókn sé á algjöru upphafsstigi.