Einnig var tilkynnt um tvö innbrot á vinnusvæði þar sem verkfærum og fleiru var stolið. Þau mál komu inn á borð lögreglustöðvar sem sinnir Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi en nákvæm staðsetning liggur ekki fyrir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en ekki eru veittar frekari upplýsingar um málin. Þar segir jafnframt að afskipti hafi verið höfð af þremur ökumönnum í dag: „Einn var gripinn glóðvolgur við að tala í farsíma og aðrir tveir til viðbótar óku vel yfir leyfðum hámarkshraða.“
Einn gistir nú fangageymslu lögreglu en ekki liggur fyrir hvers vegna sá var handtekinn.
Veistu meira um málin, hvar þau áttu sér stað og/eða ert með myndefni af bílabrunanum? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Veistu meira um málin, hvar þau áttu sér stað og/eða ert með myndefni af bílabrunanum? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.