Benedikt Höskuldsson tók í gær formlega við embætti sendiherra Íslands á Nýja-Sjálandi við hátíðlega athöfn með Cindy Kiro, landstjóra landsins.
Hann gegnir nú sendiherrastöðu á Indlandi, Srí Lanka, Nepal og Nýja-Sjálandi.
Benedikt afhenti landstjóranum trúnaðarbréf sitt í gær.
„Ísland og Nýja-Sjáland eiga langvarandi samstarf um hafréttarmál, endurnýjanlega orku og aðgerðir í loftslagsmálum, auk vaxandi viðskipta og tengsla milli þjóðanna,“ segir í tilkynningu sendiráðsins.

