Enska knattspyrnugoðsögnin David Beckham fékk í gær nafn sitt grafið á stjörnu á frægðargötunni í Hollywood. Stjörnuna fékk hann fyrir að eiga þátt í að auka veg og virðingu fótbolta í Bandaríkjunum.
Beckham stofnaði bandaríska liðið Inter Miami árið 2018 og fimm árum síðar tók hann þátt í að semja við einn besta knattspyrnumann heims, Lionel Messi. Stjarna Beckhams er númer 2.849 í röðinni.
„Það gerir mig stoltan að eiga lítinn hlut í því að fótbolti í þessu landi sé loks að taka pláss á aðalsviðinu. Ég trúi því að þetta eigi bara eftir verða betra,“ sagði Beckham við athöfnina í Hollywood í gær.
Með honum í för voru eiginkona hans Victoria Beckham og þrjú af fjórum börnum þeirra en elsti sonur þeirra talar ekki við foreldra sína vegna ósættis.
„Hvort sem það er vinna, stuðningur við fjölskyldu, vini eða málefni sem standa honum nærri þá gefur hann allt sem hann á. Án þess þó að missa sjónar á því sem mestu máli skiptir. David, ég er svo stolt af öllu sem þú hefur afrekað,“ sagði Victoria Beckham.
Þá var góðvinur Beckhams og stórleikarinn Tom Cruise viðstaddur athöfnina. „Saga hans er Hollywood-saga. Drengur sem trúði á eitthvað stærra og lagði mikið á sig fyrir hvert tækifæri sem honum gafst. Hann hélt áfram að móta sína íþrótt og menningu um heim allan ásamt því að skapa tækifæri fyrir komandi kynslóðir,“ sagði Cruise.