Bára Beauty á von á tvíburum

Bára Jónsdóttir
Mynd: Bára Jónsdóttir/Instagram
Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Bára Jónsdóttir, betur þekkt sem Bára Beauty, á von á tvíburum með maka sínum, Tryggva Sveinssyni.
Bára greindi frá gleðitíðindunum á Instagram þar sem hún birti færslu og sagði árið 2027 stefna í að verða heldur betur viðburðaríkt hjá parinu. Þá staðfesti hún að hún ætti von á tvíburum.
Bára er vel þekkt á samfélagsmiðlum þar sem hún hefur um árabil fjallað um förðun, snyrtivörur og lífsstíl undir nafninu Bára Beauty.
Fjölmargir fylgjendur og vinir Báru brugðust við gleðitíðindunum og óskuðu parinu til hamingju með fjölgunina.
Mynd: Bára Jónsdóttir/Instagram