Bandaríkjaher hefur gert árásir á hernaðarleg skotmörk í Íran, öðru sinni í þessari viku. Reuters hefur eftir talsmanni hersins að talið væri að honum og skipum á Hormússundi stafaði hætta af viðkomandi herstöð.
Hann segir nokkra íranska dróna hafa verið skotna niður og sprengingar hafa kveðið við nærri hafnarborginni Bandar Abbas sem stendur við sundið. Íranskir miðlar segja loftvarnarkerfi hafa verið virkjuð skamma stund.
Donald Trump Bandaríkjaforseti varaði stjórnvöld í Óman við afleiðingum afskipta af skipaferðum um Hormússund. Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagði í gær að Bandaríkin hefðu ekkert með stjórnun sundsins að gera.
Íranir ættu að annast skipulagið í samvinnu við Ómana. Trump sagði sundið alþjóðlega siglingaleið, opna öllum. „Ráðamenn í Óman verða að hegða sér eins og allir aðrir, ella neyðumst við til að sprengja þá í loft upp,“ sagði Trump.
Írönsk stjórnvöld segja 23 skip hafa siglt um Hormússund á síðasta sólarhring með leyfi byltingarvarðarins. Samkvæmt fréttum íranskra miðla fá skip sem stjórnin telur óvinveitt þó enn ekki að fara um sundið að svo stöddu.
Erfitt hefur reynst að staðfesta fullyrðingar Írana þar sem mörg skip slökkva á staðsetningarbúnaði sínum af öryggisástæðum þegar þau sigla um sundið. Fyrr í dag sögðu stjórnvöld í Íran ósennilegt að allsherjarátök brytust aftur út í stríðinu við Bandaríkin.