Miðstjórn Bandaríkjahers (CENTCOM) segir að frekari árásir á Íran séu hafnar. Sprengingar hafa þegar heyrst á nokkrum stöðum í suðurhluta landsins, segja fjölmiðlar í Íran. Fyrr í dag hótaði Bandaríkjaforseti áframhaldandi árásum á Íran.
„Samkvæmt fyrirmælum yfirhershöfðingja hafa hersveitir miðstjórnar Bandaríkjahers hafið frekari árásir á Íran til að draga enn frekar úr getu landsins til að ógna siglingafrelsi um Hormússund,“ segir í færslu CENTCOM á samfélagsmiðlum.
„Bandaríkin halda Írönum ábyrgum fyrir tilefnislausum árásum að undanförnu á skip og áhafnir þeirra sem hafa siglt um þessa mikilvægu alþjóðlegu siglingaleið.“
Í fréttum íranskra ríkisfjölmiðla segir að sprengingar hafi orðið í borgunum Konarak og Chabahar. Einnig er rafmagnslaust að hluta. Þá hafi loftvarnarkerfi verið virkjuð í borginni Bandar Abbas þar sem árásir hafi einnig verið gerðar.
Fyrr í dag sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að Bandaríkin myndu líklega gera aðra umfangsmikla árás á Íran í kvöld.
„Ég gaf þeim smá viðvörun. Við ætlum að ráðast á þá aftur í kvöld,“ sagði forsetinn.
Trump var einnig inntur eftir því hvort vopnahléð milli ríkjanna væri úr sögunni og hvort viljayfirlýsingin sem löndin undirrituðu í síðasta mánuði væri fallin úr gildi. Þá sagðist hann ekki vilja eiga frekari samskipti við Írana.
„Þeir eru rusl. Veistu hvað rusl er? Þeir eru rusl. Þetta er sjúkt fólk,“ sagði Trump.