Landssamband eldri borgara mótmælir harðlega komugjaldi í sjúkraþjálfun. Aukin gjaldtaka á viðkvæman hóp, segir formaður Landssambandsins.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að sérstakt komugjald verði sett á komu til sjúkraþjálfara, talþjálfara og iðjuþjálfa.
Almennt komugjald verður 1500 krónur en eldri borgarar greiða 1000 kr. og öryrkjar 500. Þessu mótmælir Landssamband eldri borgara harðlega og segir stóran hóp með tekjur undir lágmarkstaxta á vinnumarkaði: „Það er á milli átta til tíu þúsund manns sem eru með heildartekjur undir þessum lágmarkstaxta sem á að borga 18 ára unglingi á vinnumarkaði. En þetta er bara aukin gjaldtaka á hóp þar sem margir hafa ekki tök á að bæta þessu við sig,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara.
Björn hefur miklar áhyggjur af hvaða afleiðingar þetta getur haft á þennan hóp. „Þetta þýðir það að stór hluti eldri borgara hefur ekki úr of miklu að spila. Og þetta mun bara þýða það að sumir þurfa oft að sækja sjúkraþjálfun vegna aldurs og vegna veikinda, þetta mun örugglega þýða það að margir þeirra munu örugglega draga úr og hætta að mæta í sjúkraþjálfun,“ segir Björn.
Fer ekki saman hljóð og mynd hjá ríkisstjórninni
Birni finnst ekki alltaf fara saman hljóð og mynd hjá ríkisstjórninni sem segist ætla að standa vörð um eldra fólk en aðgerðirnar sýni annað.
Okkur finnst að það sé alltaf talað um það að bæta hag eldri borgara og hugsa vel um ævikvöldið. En svona ákvörðun eins og að leggja þetta gjald á þýðir að þetta ævikvöld verður ekki jafn skemmtilegt