Niðurstöður kosninga til þinga tveggja sambandslanda í Þýskalandi í dag gætu valdið miklum titringi í Berlín og veikt stöðu ríkisstjórnar kanslarans Friedrichs Merz sem þegar á undir högg að sækja.
Óróanum veldur helst möguleg fylgisaukning flokka lengst til hægri og vinstri á pólitíska litrófinu, sem sjá má í skoðanakönnunum.
Kanslarinn hefur boðað neyðarfund með forystu Kristilega demókrataflokksins eftir að fyrstu tölur berast frá Berlín og Mecklenborg-Vorpommern. Kannanir benda til þess að harðlínuhægriflokkurinn Alternative für Deutschland fái 36 prósent atkvæða og Jafnaðarmannaflokkurinn 37 af hundraði í Mecklenborg.
Kristilegir mælast aðeins með sex prósenta fylgi, hársbreidd frá þeim fimm prósentum sem þarf til að koma manni að. Félli flokkurinn af þinginu í Mecklenborg-Vorpommern yrði það mikið áfall fyrir kanslarann, enda hefur það aldrei áður gerst.
Í Berlín á flokkur Merz í harðri samkeppni við róttæka vinstri flokkinn Die Linke, sem heitir gagngerum endurbótum í húsnæðismálum og nýtur vinsælda yngri kjósenda. Merz hefur afboðað nær alla fundi næstu daga til að takast á við niðurstöðurnar, þar með talið á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Ólíklegt þykir að Alternative für Deutschland komist til valda í Berlín eða Mecklenborg-Vorpommern þrátt fyrir mikla fylgisaukningu. Sigur flokksins í Saxlandi-Anhalt fyrr í september var mikið áfall fyrir Merz, enda mátti litlu muna að hann næði meirihluta þingsæta.
Stuðningur við kanslarann sjálfan hefur hrunið og mælist aðeins tíu prósent, enda hefur gengið brösuglega að koma efnahags- og félagslegum markmiðum ríkisstjórnarinnar í gegn.
Greinendur benda á að vandann megi helst rekja til útlanda, efnahaglegra afleiðinga stríðanna í Úkraínu og Mið-Austurlöndum.
Merz fékk þó nokkra huggun á miðvikudag þegar forsætisráðherrar átta sambandslanda lýstu sameiginlega yfir að Þýskaland þarfnaðist stöðuleika nú meira en nokkru sinni fyrr frekar en vangaveltna um mannabreytingar, án þess þó að nafngreina kanslarann sjálfan.
Þrýstingur eykst án efa mjög á Merz fari svo að Kristilegir fái undir fimm prósent atkvæða í Mecklenborg-Vorpommern, enda hefur það aldrei áður gerst. Tap í Berlín væri líka kjaftshögg fyrir Merz, einkum ef það þýddi sigur Die Linke, sem vill draga úr völdum einkafyrirtækja og hallast í átt til Moskvu.