Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.
Þrjú kynferðisbrot á hátíðarsvæði Kótilettunnar eru til rannsóknar hjá lögreglu en tónlistarhátíðin var haldin á Selfossi um helgina. Lögregla segir hátíðarhöldin á hafa gengið þokkalega þrátt fyrir mikinn fjölda gesta og eril.
Barna- og menntamálaráðherra segir gagnrýni samtaka sveitarfélaga um að ríkið sé að skilgreina sig frá tilteknum hópi barna með fjölþættan vanda byggða á misskilningi. Ríkinu sé í lófa lagið að snúa fyrirkomulaginu til fyrra horfs sé það vilji sveitarfélaga.
Ísland gæti orðið hálfrar milljónar þjóð strax árið 2037, samkvæmt hæsta spáafbrigði Hagstofunnar. Á sama tíma breytist samsetning mannfjöldans hratt. Innflytjendur og börn innflytjenda eru nú rúmlega fimmtungur landsmanna, fæðingarmynstur hefur breyst og til lengri tíma er gert ráð fyrir að þjóðin eldist.