Á mánudag hefst atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsinu á Hólmsheiði. Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí.
Rétt er að taka fram að aðeins þeir sem dvelja á stofnununum, eru þar vistmenn eða heimilismenn, hafa rétt til að kjósa þar.
Frá klukkan 15 til klukkan 17 á mánudag geta íbúar Skjóls við Kleppsveg í Reykjavík og fangar í fangelsinu á Hólmsheiði greitt atkvæði. Dagana fram að sveitarstjórnarkosningum verður hægt að greiða atkvæði á öðrum heilbrigðis- og öldrunarstofnunum og stofnunum fyrir fatlað fólk. Í tilkynningu frá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu eru tímasetningar atkvæðagreiðslna birtar. Þær eru eftirfarandi:
Þá verður einnig hægt að kjósa á kjördag á Hólmsheiði milli klukkan 10 og 11, á Landspítalanum í Fossvogi milli klukkan 10 og 12:30, á Landspítalanum við Hringbraut milli klukkan 10 og 12 og á geðdeild Landspítala við Hringbraut milli klukkan 12:30 og 13.