Árásir hafa nú staðið yfir á fimmta sólahring í þessari lotu stríðsins. Loftvarnarkerfi Jórdana skaut niður þrjár meðaldrægar skotflaugar í nótt, sem jórdanski herinn segir að hafi verið skotið frá Íran. Bandaríkjamenn gerðu tugi árása við Hormússund og við Íransströnd í nótt. Ekki hefur verið greint frá manntjóni eða eyðileggingu.
Íranski byltingarvörðurinn segist hafa gert árásir á fimmta flota bandaríska sjóhersins í Barein í nótt. Í tilkynningu frá byltingarverðinum sem greint var frá á írönsku ríkissjónvarpsstöðinnir IRIB kom fram að árásirnar hefðu verið á hernaðarlega innviði, vörugeymslur og eldsneytisbirgðastöð fimmta flotans. Þá segist byltingarvörðurinn hafa gert árásir á Al-Azraq herstöðina í Jórdaníu og á Mina Abdullah, bandaríska herstöð í Kúveit.
Bandaríski herinn gerði einnig árásir á tugi hernaðarlegra innviða í Íran, við Hormússund og við Íransströnd samkvæmt tilkynningu miðstjórnar bandaríska hersins CENTCOM sem birt var á X í nótt.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði því í viðtali á Fox-sjónvarpsstöðinni í gær að Bandaríkjaher muni gera árásir á brýr og orkuver í Íran ef Íranar segjast ekki að samningaborðinu á ný.
Trump hefur áður hótað árásum á borgaralega innviði í Íran, síðast í apríl.