Karlmaður sem handtekinn var vegna stunguárásar í Belfast í gærkvöldi hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, vörslu á hlut með blaði eða oddi á almannafæri og fyrir líflátshótanir.
Hann kemur fyrir héraðsdómi í Belfast á morgun. Þetta hefur breska ríkisútvarpið BBC eftir lögreglunni á Norður-Írlandi.
Sá ákærði á að hafa stungið mann margsinnis í Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöld. Í myndskeiði af árásinni sem var dreift á samfélagsmiðlum sést árásarmaðurinn skera þolandann ítrekað í höfuð og háls með hníf og virðist vera að reyna að hálshöggva þolandann. Vegfarendur náðu að yfirbuga manninn og lögreglan handtók hann.
Þolandinn var fluttur á sjúkrahús alvarlega særður með áverka á augum, baki og andliti.
Mótmælendur kveiktu í strætisvagni
Sá ákærði er frá Sómalíu. Í kjölfar árásarinnar hefur verið efnt til mótmæla gegn straumi innflytjenda víðs vegar í Belfast. Fyrr í dag hvöttu lögregla og stjórnmálaleiðtogar í landinu til stillingar og sögðu að lögregluviðbúnaður yrði aukinn á næstu dögum.
Flestir hafa mótmælt friðsamlega, með því að standa á götum úti og stöðva umferð, en þó alls ekki allir.
Hópur að minnsta kosti hundrað grímuklæddra manna hefur gengið niður Station Road í Whiteabbey, rétt norðan við Belfast, beygt inn á Abbeyville Street og kastað grjóti í hús þar. Átta til tíu lögreglubílar eru á götunni og halda aftur af mannfjöldanum. Eftirlitsbíll lögreglu og þyrla eru á staðnum.
Þá hafa meira en hundrað manns safnast saman og kveikt í ruslatunnum og strætisvagni á Newtownards Road, í hverfi í útjaðri miðborgar Belfast. Margir í þessum hópi eru ungir, sumir grímuklæddir eða með lambhúshettur. Einhverjir veifa neyðarblysum.
Lögreglumenn hafa lokað báðum endum götunnar en röð lögreglumanna sem beið fjarri hópnum hefur hörfað.
Translink, sem rekur strætisvagna- og lestarþjónustu á Norður-Írlandi, tilkynnti fyrir skömmu að allar ferðir falli niður þar til annað verður tilkynnt.